Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fara yfir helstu atriði í útbúnaði í tengslum við Bjart framundan dagskrá 66°Norður.
Miðvikudaginn 12. nóvember kl.20:00 standa 66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fyrir kynningarfundi um útbúnað í fjallaferðum í húsakynnum 66°Norður, Faxafeni 12. Kynningin er hluti af dagskránni Bjart framundan með 66°Norður sem gefur almenningi kost á að upplifa ævintýralegar skammdegisgöngur í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Fjallað verður um fatnað, útbúnað og næringu í fjallaferðum og býðst gestum að versla og fá ráðleggingar frá fagmönnum að kynningu lokinni. Einning verður stutt ferðakynning á vegum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna.
Allir eru velkomnir á kynningarfundinn og ennþá er hægt að skrá sig í göngudagskrána Bjart framundan með 66°Norður. Þeir sem taka þátt fá þátttökukort sem gefur 25% afslátt af útivistarfatnaði frá 66°Norður og 15% afslátt af skóm og aukabúnaði. Áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér æfingaáætlunina.
Bjart framundan með 66°Norður
Göngur fyrir almenning með 66°NORÐUR og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum
Síðastliðið vor stóð 66°NORÐUR ásamt Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum fyrir dagskrá sem bar heitið „Toppaðu með 66°NORÐUR“ og miðaði meðal annars að því að gera almenningi kleift að ganga á Hvannadalshnúk, hæsta tind Íslands. Viðbrögðin við dagskránni voru frábær og nú hafa fyrirtækin aftur tekið höndum saman og útbúið skemmtilega dagskrá undir nafninu „Bjart framundan með 66°Norður“.
Dagskráin er í senn spennandi og áhugaverð og er hugsuð fyrir alla þá sem vilja hreyfa sig og kynnast íslenskri náttúru í vetrarskrúða. Vikulega verður gengið á fjöll og firnindi í nærsveitum höfuðborgarinnar en allt eru þetta svæði sem fólk leggur alla jafna ekki leið sína um á þessum árstíma þegar skammdegið er sem mest. Dagskráin er með svipuðu sniði og áður og miðar að því að gefa fólki kost á því að stunda útivist undir öruggri leiðsögn í mesta skammdeginu. Dagskrána má kynna sér nánar hér að neðan:
Fimmtudagur 23. okt. kl. 20:00 – Kynningarfundur í húsnæði 66°NORÐUR í Faxafeni.
Laugardagur 25. okt. kl. 09:00 – Hressandi hringur um Elliðaárdal. Hist við Árbæjarlaug.
Miðvikudagur 29. okt. kl. 17:30 – Eldborg, Vegghamrar og Geitahlíð. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni
Miðvikudagur 5. nóv. kl. 17:30 – Umhverfis Elliðavatn. Hist við Árbæjarlaug.
Miðvikudagur 12. nóv. kl. 20:00 – Fræðslufundur í húsnæði 66°Norður í Faxafeni.
Laugardagur 15. nóv. kl. 17:30 – Vífilsfell. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni.
Miðvikudagur 19. nóv. kl. 17:30 – Haukafjöll, Stardalshnúkar, Tröllafoss. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni
Miðvikudagur 26. nóv. kl. 17:30 – Heiðmörk, Búrfellsgjá. Hist við 66°NORÐUR Faxafeni
Laugardagur 6. des. Kl. 09:00 – Esja, Þverfellshorn. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni.
Miðvikudagur 10. des. Kl. 17:30 – Húsfell og Helgafell. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni.
Miðvikudagur 17. des. Kl. 17:30 – Kerlingarskarð, Þríhnúkar og Stóra Kóngsfell. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni
Laugardagur 27. des. Kl. 08:00 – Hafnarfjall. Hist í húsnæði ÍFLM á Vagnhöfða 7.
Miðvikudagur 7. jan. Kl. 17:30 – Umhverfis Kleifarvatn. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni.
Laugardagur 17. jan. kl. 08:00 – Botnssúlur. Hist í húsnæði ÍFLM á Vagnhöfða 7
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600
