Efnin sem við notum
Mismunandi efni eru í flíkunum eftir því til hverra nota þær eru hugsaðar. Þú getur lesið nánari upplýsingar um hvert efni fyrir sig með að smella á tenglana hér til vinstri.
Grunnlag
er það lag fatnaðar sem liggur næst líkamanum. Efnin sem notuð eru í grunnlag eiga það öll sameiginlegt að draga raka frá líkamanum og dreifa honum um yfirborð efnisins til að ná sem mestri uppgufun á sem skemmstum tíma. Við notum hvort tveggja Merino ull og flísefni, á borð við Power Stretch og Power Dry, í fatnað sem er hugsaður sem grunnlag. Efnin eru miseinangrandi fyrir mismunandi aðstæður.
Miðlag
hefur þann tilgang að mynda loftmikið lag sem veitir góða einangrun. Miðlagið þarf einnig að taka við raka frá innsta laginu og annað hvort veita honum í burtu eða draga hann í sig án þess þó að missa einangrunargildi sitt. Algengast er að nota flísefni í miðlagið en flísefni eru gædd mjög mismunandi eiginleikum. Hefðbundna flísefnið, sem til er í nokkrum þykktum og gerðum, er notað sem einangrun undir yfirhafnir. Aðrðar tegundir flísefnis sem við notum eru til að mynda Wind Pro flísið sem er vind- og vatnsfráhrindandi flísefni sem hrindir frá sér vatni og andar en er ekki regnhelt. Power Shield flísefnið er önnur tegund af flísefni sem stundum er kallað Soft Shell. Power Shiled hefur sömu eiginleika og vindhelda flísið en er þar að auki mjög slitsterkt og regnþolið.
Skel
er ysta lagið og þær flíkur sem notaðar eru yfir flísið og verja það gegn veðri og vindum. Við notum nokkrar gerðir efna í skeljar sem öll eiga það sameiginlegt að vera í hæsta gæðaflokki. Má þar helst nefna eVENT® sem er háþróað vatnshellt efni sem andar einstaklega vel (hleypir raka út frá líkamanum). Við notum fleiri efni sem falla í sama flokk og eVENT® og eru þær flíkur allar með vatnsheldum saumum. Efnin hafa öll mismunandi eiginleika sem henta við mismunandi aðstæður og notkun. Við notum gúmmíhúðuð efni í flíkur sem eiga að þola að vera lengi úti í mikilli rigningu án þess að notandinn blotni nokkuð. Flíkur úr gúmmihúðuðu efni eru mest hannaðar fyrir sjómenn og börn.
.
