Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Entrant Dermizax-EV logoEntrant Dermizax-EV

Slitþolna efnið sem endurskilgreinir hugtakið "þægindi".

ENTRANT DERMIZAX-EV er þróað til að veita hámarks þægindi. Í fyrsta lagi er efnið mjög vatnshelt, jafnvel í verstu rigningarstormum. Í öðru lagi andar efnið betur vegna þróaðrar himnu sem stjórnar rakauppgufun eftir því hvert hitastigið er undir flíkinni. Sú þægilega tilfinning að vera þurr er áberandi þegar klæðst er ENTRANT DERMIZAX-EV. Hin endingargóða yfirborðsmeðhöndlun heldur vatnsfráhrindingu í yfir 80 punktum jafnvel eftir 100 þvotta á flíkinni. Þetta tryggir langan líftíma flíkurinnar. Allir þessir þættir þýða að notandi getur verið öruggur um þægindi og gæði jafnvel við mest krefjandi aðstæður. Hin ofurþunna himna gefur ENTRANT DERMIZAX-EV fjaðurmagnaða áferð og léttleikandi eiginleika.

Entrant Dermizax-EV features



Veldu land : IS