Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Event Logo 2eVENT®

eVENT® er hágæða öndunarfilma sem færir raka 200% hraðar frá líkamanum en Gore-Tex XCR. Auk þess byrjar eVENT® filman mun fyrr að veita raka frá líkamanum en aðrar öndunarfilmur. Sérstaða eVENT® öndunarfilmunnar er að hún er með örlítil göt sem ná í gegnum filmuna og hleypa rakanum beint út. Aðrar filmur t.d. Gore-Tex eru ekki með nein göt og þurfa því fyrst að draga rakann í sig áður en honum er veitt út á ytra byrð filmunar með sérstöku ferli.  Þetta er ástæða þess að eVENT® filman virkar mun hraðar en aðrar öndunarfilmur.

Árið 2007 veitti ameríska alpastofnunin (The American Alpine Institute) eVENT® hin eftirsóttu Guides Choice verðlaun. Verðlaunin eru bestu meðmæli sem útivistarvara getur fengið og mikil viðurkenning. Í umsögn stofnunarinnar kom fram að fatnaður með eVENT® helst þurr að innan sem gerir það að verkum að líkur á ofhitnun minnka sem svo leiðir til aukinna þæginda fyrir notandann.

Hröð virkni eVENT®  filmunnar getur skipt sköpum í köldun, þurrum aðstæðum eins og oft verða á Íslandi þar sem rakur innanundirfatnaður getur haft verulega slæm áhrif á það að halda líkamanum heitum.
  • Hámarks þægindi við erfiðar aðstæður
  • Algjörlega vatnshelt
  • Heldur fatnaði þurrum að innan með því að hleypa uppgufun frá líkama í gegnum milljónir af agnarsmáum opum í himnunni.

eVent®filman

 

Önnur efni

eVENTMembrane2 theothers2
Við 5000x stækkun í smásjá sést vel uppbygging efnisins. Vatn að utan kemst ekki í gegn en uppgufun að innan kemst út í gegnum örlítil op í efninu. Þetta gefur efninu sína einstöku öndunareiginleika sem skila sér í meiri þægindum til notandans. 
 
Önnur efni hleypa uppgufun ekki beint í gegn, uppgufun þarf að safnast fyrir í raka sem skapar síðan þrýsting á filmuna sem hleypir síðan uppgufuninni í gegn. Þessi aðferð skilar litlum þægindum til notandans.

Veldu land : IS