Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Lífræn bómull

Eiginleikar:

  • Lífræn bómull hefur alla sömu eiginleika og hefðbundin bómull.
  • Þægileg viðkomu og hefur minni umhverfisleg áhrif en venjuleg bómullarefni.
  • Við ræktun er ekki notast við efni efni á borð við tilbúinn áburð og meindýraeitur heldur er stuðst við víxl uppskeru og lífrænar meindýravarnir.
  • Lífræna bómullin sem 66°NORÐUR notar er þurrkaður án AZO og er vottaður af OCIA International sem lífræn vara.

Veldu land : IS