Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Pertex® Endurnace

Pertex® Endurnace er tækni sem sameinar einstaklega þunna himnu og endingargott nælon efni. Himnan er svo þunn að hún bætir hvorki þyngd við efnið né hefur hún áhrif á mýkt efnisins. Aðal markmiðið með Pertex® Endurnace er að veita hámarks vörn gegn raka, bæði að innan sem utan. Pertex® Endurnace er 100% vindþétt og andar mjög vel um leið og efnið er sérlega vatnsfráhrindandi. 

Venjulega tapa einangraðar flíkur (bæði dún og flíkur með örtrefjafyllingu) örlitlu af einangrunargildi sínu vegna raka. Pertex® Endurnace heldur raka í burtu sem tryggir það að einangrunin helst þurr og starfar eins og til var ætlað. Vegna þess að Pertex® Endurnace er einnig vindþétt þá tapast auk þess ekki hiti frá einangruninni.


Veldu land : IS