Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Pertex® Quantum

Pertex® Quantum er einstaklega létt efni og vegur ekki nema rétt um 30g/m2. Efnið er gert úr fínustu mögulegu þráðunum auk þess að vera með hámarks þráðfjölda (e. thread count). Það að flík sé úr léttara efni á ekki að þýða að notandinn þarf að fara varlega. Pertex® Quantum sannar þetta og er sterkasta efnið m.v. þyngd á markaðnum í dag. Pertex® Quantum er notað í skeljar og þolir mikla notkun og álag en þó er ekki hægt að bera efnið saman við hefðbundin 44g/m2 efni sem notuð eru í skeljar.

  • Létt og sterkt
  • 25-50% léttara án þess að tapa styrkleika
  • Tekur 50% minna pláss í bakpoka
  • Dúnn kemst ekki í gegnum efnið

Veldu land : IS