Polartec® Power Dry®
Polartec® er með einkaleyfi á vefnaðaruppbyggingunni sem gerir Power Dry® efnið einstakt. Notaðir eru mismunandi þræðir í innra og ytra byrði efnisins sem hafa ólíka eiginleika. Þessi tvískipting gerir það að verkum að innra byrðið dregur raka frá húðinni á sama tíma og ytra byrðið þornar fljótt. Power Dry® er eitt þurrasta og hlýasta efnið á markaðnum fyrir grunnlag.
- Heldur húðinni þurri þegar þú svitnar
- Lágmarkar kólnun vegna raka
- Létt efni sem andar einstaklega vel
- Þornar fljótt
- Þægilegt við húð
- Má þvo í þvottavél
