Polartec® Power Shield®
Power Shield® er næsta kynslóð tæknilegs útivistarfatnaðar sem gengur oft undir nafninu mjúkskel (Soft-shell). Mjúkskelin fer út fyrir hefðbundið tveggja laga kerfi þar sem flís einangrun og vind- og vatnsheld skel eru sameinuð í eitt lag sem ver notandann fyrir veðri og vindum. Power Shield® er einstakt efni sem er 98% vindhelt, og hleypur 2% af vindinum í gegn til að mynda hringrás lofts og auka öndun. Ytra byrðið er einstaklega slitsterkt og vatnsfráhrindandi og fatnaður úr Power Shield® hentar vel við ólíkar aðstæður.
Mjúkskel sem sameinar eiginleika miðlags og ysta lags
- 98% vindþétt en hleypir 2% af vindinum í gegn til þess að mynda hringrás lofts og koma í veg fyrir ofhitnun
- Einstaklega slitsterkt og endingargott efni
- Vatnsfráhrindandi og vörn gegn bleytu og snjó
- Andar vel sem kemur í veg fyrir ofhitnun
- Teygjanlegt
- Hlýtt og létt
- Hávaðaminna en skel
- Má þvo í þvottavél
! Með því að rita "PowerShield" inn í leitarboxið hér fyrir ofan getur þú auðveldlega fundið vörur sem framleiddar eru úr efninu.