Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Polartec® Power Stretch®

Polartec® Power  Stretch® hentar hvort tveggja í nærfatnað og sem einangrandi lag. Efnið teygist á fjóra vegu og andar mjög vel. Það dregur raka vel frá líkamanum og heldur húðinni þurri þegar þú svitnar. Power  Stretch® er eitt fjölhæfasta efnið fyrir útivist og heilsurækt sem er á markaðnum í dag. Efnið samanstendur af vindþolnu og endingargóðu næloni að utan og mjúku innra byrði sem dregur raka frá húðinni heldur henni þurri. Þetta eykur þægindi notandans um leið og efnið heldur á honum hita án þess að vera þungt.
  • Power StretchAndar mjög vel
  • Teygist á fjóra vegu
  • Dregur raka frá húðinni
  • Rakinn dreifist og gufar upp
  • Heldur þér þurri/þurrum þegar þú svitnar.
  • Léttur fatnaður sem heldur á þér hita.
  • Fjölhæfasta efnið fyrir útivist og heilsurækt sem er á markaðnum í dag.
  • Má þvo í þvottavél


! Með því að rita "Power Stretch" inn í leitarboxið hér fyrir ofan getur þú auðveldlega fundið vörur sem framleiddar eru úr efninu.
Power-Stretch-logo2

Veldu land : IS