Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Primeflex

Eiginleikar:

  • Primeflex efnið blandar saman mjúkri viðkomu og miklum teygjanleika sem gerir það að verkum að efnið er mjög fjölbreytilegt og hægt er að nota Primeflex hvort tveggja dags daglega og við mikla hreyfingu.
  • Primeflex efnið fylgir eftir öllum líkamshreyfingum án þess að hindra þær.
  • Primeflex efnið er mjög þægilegt og mjúkt viðkomu.
  • Primeflex efnið er einstaklega stöðugt og heldur lögun sinni.
  • Primeflex efnið krumpast lítið og er einfalt í umgengni.


Veldu land : IS