Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Slóð:

Fróðleikur » Ísland

Ísland

Um ÍslandKeilirEsjaGlymurHengillTindurKatlaBláfellKjölurSúlurLakiAskjaVíti


Á fáum stöðum á jörðinni upplifir fólk jafnmikla fjölbreytni í landslagi, eins og á Íslandi. Vegalengdir milli gjörólíkra staða eru oft litlar, og sambýli ýmissa þátta náttúrunnar er stundum með ólíkindum. Fjaran og fjallið, skógurinn og eyðimörkin, myndun lands og eyðing, lífið og dauðinn; Ísland hefur oft verið nefnt land andstæðnanna.

Það er stórkostlegt, að geta gengið á örskotstundu af jökli inn í skóg, nú eða finna heita laug á miðjum eyðisandi. Nálægð fjöru og fjalls gefur á stundum tækifæri á mjög skemmtilegum ferðalögum, rétt eins og nálægð sumars og veturs er stundum með ólíkindum. Svo rammt getur kveðið að þessum andstæðum, "að það vorar á vinstri kinn, en vetur heldur í þá hægri..."

Þar sem landið er sífellt í mótun, geta menn upplifað það að staðir sem þeir hafa lifað við, eða heimsótt, breytist eða jafnvel hverfi sem slíkir. Mörg dæmi mætti um það nefna, en líklega hefur verið mjög afgerandi og umhugsunarvert fyrir þá Skaftártungumenn að sjá hvar stærsta gljúfur landsins fylltist hrauni árið 1783 og hvarf með öllu; náttúrusmíð sem kynslóðir höfðu alist upp við sem órjúfanlegan hluta landslagsins.

Enda þótt þekking á staðbundnum aðstæðum sé nauðsynleg, þá má bjarga sér langt á góðri heildaryfirsýn, og getu til að túlka landið og ytri skilyrði. Best er að vera búinn undir sem flestar þær aðstæður sem upp geta komið, án þess þó að íþyngja sér um of með óþarfa útbúnaði.

Það mætti einnig spyrja hvort aðal andstæðurnar séu ekki maðurinn annars vegar, og svo náttúran hins vegar. Þá er í leiðinni verið að gera ráð fyrir því að maðurinn sé ekki hluti af náttúrunni. Slíkt finnst okkur sem vinnum í nánum tengslum við náttúruna mjög óeðlileg rök, til þess eins fallin að réttlæta allskyns lifnaðarhætti eins og "að komast af, þrátt fyrir landið" eins og skáldið sagði....

Við getum ekki annað en bent fólki á leið til að komast að hinu gagnstæða:

Ferðist út í náttúruna, á hennar eigin forsendum..

(Efni tekið af vef Íslenskra fjallaleiðsögumanna)


Veldu land : IS