Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Athyglisverðir staðir

Glymur

Glymur MapBotnsá rennur úr öðru dýpsta vatni landsins, Hvalvatni (160 m), í Hvalfjörð. Í stórfenglegt gljúfur Botnsár fellur hæsti foss landsins, Glymur, um 198 metra hár. Margir hafa furðað sig á örnefnum á þessum slóðum en skemmtileg þjóðsaga er Rauðhöfði nefnist segir frá tilurð þeirra.

Tindur

Tindur MapTindur í Tindfjöllum stendur ögrandi upp úr Tindfjöllum, fjallarana er gengur suðaustur úr Tindfjallajökli, en af Tindinum er frábært útsýni yfir Þórsmörk og Fljótshlíð og upp á jöklana tvo við suðurströndina, Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul.

Askja

Askja MapAskja er virkt eldfjall í Ódáðahrauni og má rekja myndun hennar til tíðra eldgosa. Undir Öskju er kvikuþró sem tæmst hefur við eldgos svo botninn hefur sigið. Árið 1875 varð öflugt eldgos í gíg Öskju, svipað því er lagði grunn að mótun fjallsins 10.000 árum áður. Um 2,5 km3 gosefna komu upp á nokkrum klukkustundum og að því loknu hrundi þak kvikuþróarinnar enn á ný um 250 metra. Með tímanum fylltist sigdældin af vatni er nefnist nú Öskjuvatn. Öskjuvatn er dýpsta stöðuvatn landsins, 220 metrar.

Bláfell

Blafell MapFjarlægðin gerir fjöllin blá. Bláfell er útvörður Kjalar í suðri. Hæð Bláfells, sem er móbergsstapi en svo nefnast fjöll sem orðið hafa til við gos undir jökli, er 1204 metrar. Bláfell gefur því vel til kynna stöðu jökla á myndunartíma þess. Bláfell er hæsta fjall utan jökla á suðvesturhorni landsins.

Súlur

Sulur MapSúlur eru bæjarfjall Akureyrar. Í raun eru Súlur tveir fjallstindar. Nær Akureyri rís Ytri-súla en litlu sunnar er Syðri-súla sem er hærri, 1213 metrar. Súlur eru að mestu gerðar úr ljósu líparíti sem á uppruna í Öxnadalseldstöðinni, er var virk fyrir 8-9 milljónum ára.

Katla

Katla MapKatla er eitt mesta eldfjall á Íslandi og erfiður nágranni. Þegar Katla lætur á sér kræla er von á öflugum þeytigosum sem jafnan fylgir gífurlegt jökulhlaup, enda kúrir Katla undir þykku jökulhveli Mýrdalsjökuls. Jökulhlaup Kötlu standa yfirleitt stutt en stærð þeirra og kraftur á sér fáar hliðstæður í heiminum og getur vatnsmagn í hamfaraflóðum náð meðalrennsli vatnsmestu ár heims, Amazon í Suður-Ameríku.

Esja

Esja MapÍ Kjalnesingasögu er sagt frá írskri ekkju sem hét Esja. Hún var vellauðug og bjó að Esjubergi eftir lát Örlygs gamla sem þar byggði fyrstur bú. Kunnugir draga þessa söguskýringu í efa eins og raunar fleira í þessari annars ágætu lygasögu. Tilurð nafnsins er því enn á huldu.

Hengill

Hengill MapHengill er fjallaklasi rétt utan borgarlandsins er afmarkast af Hellisheiði í suðri, Mosfellsheiði í norðri og Þingvallavatni í austri. Eitt helsta einkenni og jafnframt aðdráttarafl Hengilsins er víðfeðmt og fallegt háhitasvæði með kröftugum leirhverum og litfögrum gufuhverum. Fjöldi fallegra gönguleiða er í Henglinum og víða má finna náttúrulega heita potta sem tilvalið er að dýfa tánum í og finna þreytuna líða úr líkamanum.

Keilir

Keilir MapHið formfagra fjall Keilir varð til við gos á sprungu undir jökli á ísöld. Upphaflega hefur Keilir því verið hluti móbergshryggjar sem eyddist með árunum af völdum veðrunar og huldist nýrri hraunum þannig að eftir stendur fjallið Keilir (378 metrar), einkennisfjall Reykjanesskagans.

Kjölur

Kjolur MapFyrir daga bílsins var Kjölur eða Kjalvegur fjölfarnasta leið milli Norður- og Suðurlands. Kjölur nefnist hæsta svæðið (spildan) milli Langjökuls og Hofsjökuls þar sem vatnaskil eru (eins og kjölur báts (keel) á hvolfi). Þar sem Kjölur er í raun skarð á milli tveggja stórra jökla verða þar gjarnan skyndilegar og stundum ófyrirséðar veðurbreytingar.

Víti í Dyngjufjöllum

Viti MapÞann 29. mars árið 1875 varð öflugt sprengigos í Dyngjufjöllum sem markaði endalok Öskjugossins. Við þetta myndaðist sprengigígurinn Víti við norðanvert Öskjuvatn. Í hreinum sprengigosum æðir fljótandi bergkvikan upp á yfirborð og splundrast í svonefnda gjósku (tephra), þegar kvikan kemst í tæri við grunnvatn í gosrásinni.

Laki

Laki MapÁ Suðurlandi hófst árið 1783 með miklum jarðskjálftum svo 90 sveitabæir á Suður- og Suðausturlandi lögðust í rúst. Í júní sama ár hófust Skaftáreldar, eitt mesta hamfaraskeið Íslandssögunnar, með gríðarlegu eldgosi á 25 km langri gossprungu kenndri við móbergsfjallið Laka.


Veldu land : IS