Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Týr

Týr er einhentur guð hernaðar, himins og þings. Hann missti höndina þegar æsir plötuðu Fenrisúlfinn til að láta binda sig með galdrakeðjunni Gleipni og gera þannig Miðgarð að öruggari stað fyrir mannkynið. Fenrisúlfur var eitt af ógurlegum afkvæmum Loka. Týr var sá eini sem þorði að fóðra hann. Því hafði verið spáð að Fenri myndi vinna ásum óbætanlegt tjón svo þeir urðu að finna leið til að halda honum í skefjum. Þeir fengu því dverga til að smíða fjötur sem gæti haldið úlfinum. Fjöturinn leit sakleysislega út, en var í raun búinn göldrum. Úlfinn grunaði að æsir væru að reyna að plata sig og neitaði að láta binda sig nema einhver ásanna myndi leggja hönd sína í munn hans. Týr var sá eini sem þorði að leggja höndina sína að veði og galt fyrir hugrekki sitt með henni, Fenrisúlfurinn beit af höndina og heitir þar úlfliður hvar höndin hrökk af.

Týr er sonur Óðins. Hann var hugprúðastur og djarfastur allra ása og eru af honum margar sagnir. Stríðsmenn ristu galdrastaf hans á skefti sverða sinna og ákölluðu hann áður en þeir lögðu til atlögu í bardaga. Týsdagur var nefndur eftir ásnum.

(Heimild: Wikipedia)


Veldu land : IS