Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Askur og Embla

Askur og Embla voru gerð úr tveim trjám sem Óðinn, Vili og Vé, fundu á strönd. Óðinn gaf þeim önd og líf, Vili gaf þeim vit og hreyfingu en Vé gaf þeim ásjónu, mál, heyrn og sjón.

Að þessu loknu gáfu þeir bræður þeim klæði og nöfn, manninum nafnið Askur en konunni Embla. Af Aski og Emblu ólst mannkynið sem gefinn var Miðgarður til að búa í. Askur og Embla eru því fyrstu mennirnir samkvæmt norrænu goðafræðinni.


Veldu land : IS