Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Freyja

Freyja er gyðja ástar og frjósemis. Freyja er af ætt vana en bjó ásamt bróður sínum Frey og föður sínum Nirði í Ásgarði en þangað voru þau send sem gíslar og vináttuvottur eftir stríð þessara tveggja ætta goða. Freyja var valdamikið gyðja og mikið dýrkuð af konum en einnig af konungum og hetjum. Hún jók frjósemd lands og sjávar og veitti hjálp í hjónabandi og við fæðingar. Verandi ástargyðja er hún sögð hafa átt marga ástmenn bæði goð og konunga sem hún studdi svo í valdatíð þeirra.

Freyja ferðaðist í vagni sem tveir kettir drógu. Hún átti einnig valsham sem var þeim eiginleikum búinn að er hún klæddist honum breyttist hún í fugl og gat flogið hvert sem hún vildi. Freyja hafði auk þess miklar mætur á dýrum djásnum.

(Heimild: Wikipedia)


Veldu land : IS