Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Frigg

Frigg Fjörgynsdóttir er höfuðgyðja í norrænni goðafræði, eiginkona Óðins og móðir Baldurs og Hermóðs hins hvata. Nafn hennar merkir ást eða hin elskaða. Frigg veit öll örlög og hún er verndari hjúskapar, fjölskyldu og heimilis. Einkennisgripir hennar eru lyklar, mistilteinn, valshamur og rokkur sem hún notar til að spinna skýin. Frigg býr að Fensölum í Ásgarði. Þar hefur hún ellefu þjónustumeyjar: Fulla, Hlín, Gná, Lofn, Sjöfn, Syn, Gefjun, Snotra, Eir, Vár og Vör.

Af börnum sínum unnu Óðinn og Frigg Baldri mest en hann var bjartastur ása. En þar Frigg vissi öll örlög vissi hún að Baldur var feigur. Til að reyna að vernda hann fékk hún allar skapaðar verur, menn, dýr og jurtir, og alla skapaða hluti úr málmi, tré og steini til að sverja að gera honum aldrei mein. Eftir það gátu goðin skemmt sér við að kasta hlutum að Baldri vitandi það að honum yrði ekki meint að. Því miður uppgvötaði Loki að ein lítil jurt, mistilteinn, hafði ekki svarið Frigg þennan eið því hún hafði álitið hann of ungan til að geta valdið skaða og gat þannig með klækjum drepið Baldur. Að Baldri látnum freistaði Hermóður hinn Hvati þess að fá bróður sinn heimtan frá Hel og var honum tjáð að Baldur fengi að fara ef allir hlutir, bæði lifandi og dauðir fengjust til að gráta hann. Frigg sendi þá erindreka um allan heim til að biðja alla, bæði lifandi sem dauða hluti til að sýna ást sína á Baldri og gráta hann. Allir urðu við þeirri bón, bæði menn, dýr, steinar og málmar, því allir elskuðu Baldur. En að lokum komu sendiboðarnir að gamalli konu sem neitaði að gráta Baldur því aldrei hefði hún elskað hann. Reyndist þetta vera Loki í dulargervi og Baldur mátti því dvelja áfram í Helju.

(Heimild: Wikipedia)

 


Veldu land : IS