Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Njörður

NjordNjörður var af vanaættum en tvær kvíslar komu af goðaættum og heitir hin ættin ætt ása. Þessar ættir áttu í stríði hvor við aðra og er þær höfðu sæst þá létu vanir æsi hafa Njörð en í staðinn fengu vanir Hæni. Trúlegt er að stríði milla ása og vana sé upphaflega vegna tveggja trúarbragða, þ.e. trúar á æsi og trúar á vani. Æsir voru blótaðir til árs og friðar en vanir til sigurs og hernaðar.


Orðið Njörður er skyld indóevrópskum orðum sem merkja af, hraustur, sterkur, harður viðureignar, sbr. mannsnafnið Nero, sem merkir sterkur og hugaður.


Njörður var guð frjósemi, vinda, sjávar, fiskveiða, sjóferða, auðlegðar og sumars. Því hétu sjómenn og veiðimenn á Njörð. Þótt Njörður hafi upphaflega verið frjósemisguð þá færðist það hlutverk smátt og smátt yfir á Frey en Njörður gerist guð sjómanna þegar sjóferðir hefjast á Norðurlöndum. Rekja má dýrkunina á Nirði til danskrar gyðju, Nerþus, sem átti að tákna móður jörð. E.t.v. hefur Nerþus verið systir Njarðar.


Í Heimskringlu segir að Njörður hafi átt börn sín, Frey og Freyju, með systur sinni, en það tíðkaðist í Vanaheimi en ekki hjá ásum. En í Snorra-Eddu er talað um hjónaband Njarðar og Skaði.


Til gamans má geta þess að örnefnið Njarðvík er til á tveimur stöðum á landinu, þ.e.a.s. Njarðvík á Suðurnesjum og Njarðvík á Austfjörðum, á leið til Borgarfjarðar eystra. Á Stór- Reykjavíkursvæðinu má finna göturnar Njarðargötu, Njarðargrund, Njarðarholt og Nóatún.


(Efni tekið af vef Hörpu Hreinsdóttur: Forn fræði).
Veldu land : IS