Óðinn
Óðinn er æðstur ása og mestur norrænna guða. Hann er sonur Burs Búrasonar og Bestlu Bölþornsdóttur. Hann á tvo bræður, þá Vilja og Vé, og gerðu þeir ásamt honum himin og jörð af jötninum Ými. Óðinn er faðir flestra ása og á þá með konu sinni Frigg Fjörgynsdóttur. Hann á þó Heimdall með níu systrum, Ásaþór með dóttur sinni Jörð, Víðar með Gríði og Vála með Rindi.Óðinn á salinn Valaskjálf. Hann situr þar í hásætinu Hliðskjálf og sér þaðan um alla heima. Hann á hrafnana Hugin og Munin sem fljúga um veröldina og bera honum fréttir. Einnig elur hann úlfana Gera og Freka. Óskasynir Óðins eru vopndauðir menn sem berjast fyrir hann, þeir eru nefndir einherjar. Þá kjósa valkyrjur úr valnum og færa til Valhallar.
Óðinn talar í bundnu máli og nærist eingöngu á víni, allan mat gefur hann úlfum sínum. Hann getur brugðið sér í allra kvikinda líki og fremur seið og galdur. Vopn hans er spjótið Gungnir og hestur hans er hinn áttfætti Sleipnir.
Óðinn lagði auga sitt að veði fyrir drykk úr Mímisbrunni, og öðlaðist þannig visku. Mímir er ráðgjafi Óðins, en samkvæmt Ynglinga sögu lífgaði Óðinn höfuð hans við með galdri.
(Heimildir: Völuspá).
