Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Þór

ThorÞór er sterkastur ása og einstaklega skapbráður, sonur Óðins og gyðjunnar Jarðar, sem einnig var dóttir Óðins.


Hann er kvæntur Sif og saman eiga þau börnin Móða og Þrúði. Þór á einnig soninn Magna með tröllkonunni Járnsöxu. Hann býr að Þrúðvöngum í höllinni Bilskirni; hún er allra húsa stærst svo vitað sé, með fimmhundruð og fjörutíu gólf.


Þór verndar æsi og menn fyrir jötnum, hann hefur það fyrir sið að halda til jötunheima í vagni sínum og berja tröll.  Þegar hann ekur vagninum heyrast þrumur. Hann er dreginn af tveimur höfrum, Tanngnjóstri og Tanngrisni; sé þeim slátrað um kvöld og bein þeirra geymd rísa þeir heilir að morgni.


Þór á þrjá kostagripi: hamarinn Mjöllni, járnglófa og megingjarðir. Mjöllnir er allra gripa bestur en til að bæta fyrir það hve hamarsskaftið er stutt notar Þór járnglófana þegar hann kastar honum, þeim má hann ekki tapa. Megingjarðirnar spennir hann um sig og vex þá ásmegin.


(Heimildir: Völuspá).
Veldu land : IS