Urður, Verðandi og Skuld
Urður, Verðandi og Skuld eru þrjár örlaganornir sem búa við brunn, sem heitir Urðarbrunnur, og stendur við eina af þrem rótum Asks Yggdrasils. Urður, Verðandi og Skuld ausa yfir tréð, einu sinni á dag, vatni sem á að halda trénu frá því að fúna eða visna.
Urður er myndgervingur fortíðarinnar, Verðandi nútímans, og Skuld framtíðarinnar.
Þær stýra örlögum manna og hafa til þess langa þræði sem þær hugsa um af ýtrustu varfærni. Þegar kemur að því að maður er búinn með sinn tíma þá klippa þær á þráðinn og örlög viðkomandi eru ráðin.
(Heimild: Wikipedia)
