Þróun fatnaðar
Hönnunarferlið hefst á að skoða til hvers við ætlumst af flíkinni og fyrir hvern við erum að hanna hana. Efnin og eiginleikar þeirra eru svo það sem leiðir hönnunina. Efni sem við notum í göngufatnað s.s. göngubuxur, þurfa að vera létt, lipur, slitsterk, anda vel og hrinda frá sér vatni.
Við hönnun á flík tölum við gjarnan við aðila sem tilheyra þeim hópi sem við miðum við t.d. þá sem stunda ýmiskonar sport og klífa fjöll, björgunarsveitarmeðlimi, sjómenn og síðast en ekki síst mæður fyrir barnafatnað. Við förum einnig á sýningar erlendis til að fylgjast með því nýjasta sem er að gerast í efnaframleiðslu og í framleiðslu á fylgihlutum eins og rennilásum og smellum.
Hjá fyrirtækinu starfa tveir hönnuður, 2-3 í sníðagerð og ca. 2 sem sauma sýnishorn.
Hönnuðirnir gera teikningar af flíkinni, velja efni og liti og svo erum við með sníðadeild sem sér um að búa til sniðin og litla verksmiðju sem gerir sýnishorn. Þegar við erum orðin ánægð með flíkina látum við gjarnan prófa hana í ákveðin tíma áður en hún fer svo á endanum í framleiðslu í verksmiðju okkar í Lettlandi.
Mismunandi efni eru í flíkunum eftir því til hverra nota þær eru:
Grunnlag
er það sem kemur næst líkamanum og erum við með þrennskonar efni sem við notum í þær flíkur:
Öll eiga það sameiginlegt að draga raka frá líkamanum og dreifa um yfirborð efnisins til að ná sem mestri uppgufun á sem skemmstum tíma. Efnin eru miseinangrandi fyrir mismunandi aðstæður.
![]()
Miðlag
eru flísefnin sem eru gædd mjög mismunandi eiginleikum. Hefðbundna flísið sem til er í nokkrum þykktum og gerðum er notað sem einangrun undir yfirhafnir.
WindPro flísið er vindhelt flís sem hrindir frá sér vatni og andar en er ekki regnhelt, PowerShield sem stundum er kallað Soft Shell, hefur sömu eiginleika og vindhelda flísið en er þar að auki mjög mjög slitsterkt og regnþolið.
Skel
eru svo þær flíkur sem eru notaðar yfir flísið og eru regnheldar. Þar erum við með nokkurar gerðir efna s.s. E-vent sem er mjög háþróað vatnshellt efni sem andar (hleypir raka út frá líkamanum). Við notum fleiri efni sem falla í sama flokk og E-vent og eru þær flíkur allar með vatnsheldum saumum. Þessi efni eru til tveggja laga og eru þá fóðruð með léttu fóðri, tveggja og hálfslaga og eru þá með áprentuðu fóðri og svo þriggja laga efnið sem er best en þar er fóðrið fast við efnið. Við notum gúmmíhúðuð efni í flíkur sem eiga að þola að vera lengi úti í mikilli rigningu án þess að notandinn blotni nokkuð. Flíkur úr gúmmihúðuðu efni eru mest hannaðar fyrir sjómenn og börn.
Hönnunarlínur
Við erum með tvær línur á ári, vor/sumar og haust/vetur. Fyrir hvert tímabil skiptum við út litum og hluta línunnar.
Hver lína skiptist í:
- High Performance sem er ætlað virku fólki sem stundar jaðarsport, skíði og mikla útivist.
- Active sem er fyrir t.d. fólk sem fer í gönguferðir með ferðafélögum og stundar útilegur.
- Travel & Leisure, er svo fyrir almenning sem vill klæðast sportlegum þægilegum fatnaði dagsdaglega.
- Börn og ungabörn sem við viljum að fái sömu gæði og við fullorðna fólkið bæði hvað varðar efni, snið og liti.
