Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Slóð:

Hlauparöð


 

  


Hlauparöð 66°Norður

Hlauparod_Forsidukubbur_260x180px_0510Nýlega lauk Hlauparöð 66°NORÐUR, en þetta var annað árið í röð sem hlauparöðin er haldin. Hlaupin eru um malarvegi, gamla vegslóða, kindastíga og ýmsa hóla og hæðir. Upplagt fyrir þá sem vilja njóta náttúru Íslands í góðum félagsskap.

Hlaupin í boði voru:
4. júní: Grafningshlaupið - 25 km
17. júní: Hamarshlaupið Hveragerði - 25 km, einnig í boði 5 km
2. júlí: Þorvaldsdalur - 27 km
30. júlí: Barðsneshlaupið - 27 km, einnig í boði 13 km
6. ágúst: Jökulsárhlaup - 33 km, einnig í boði 13 km og 21 km

Um 600 manns tóku þátt í öllum hlaupunum og þökkum við fyrir góða þátttöku og vonumst til að sjá sem flesta að ári.


 

halup banner 1hlaup banner 2


Veldu land : IS