Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Myndbandakeppni grunnskólanna


Frestur til að skila inn myndböndum rann út 1. nóvember.  Verið er að vinna úr myndböndum og setja upp netkosningu sem verður opnuð seinnipart fimtudagsins 4. nóvember og stendur til 8. nóvember hér á heimasíðu 66°NORÐUR.

  

VinningsMYNDBÖND FYRRI ÁRA



2009:     1.-7. bekkur var vinningshafinn Háteigsskóli         8.-10. bekkur var vinningshafinn Austurbæjarskóli

  2008   1.-7. bekkur var vinningshafinn Háteigsskóli       8.-10. bekkur var vinningshafinn Grunnsk. Þorlákshafnar

Einnig er hægt að sjá eldri myndbönd á Youtube.

  

Um Myndbandakeppni grunnskólanna

Mydbandakeppni101. október hefst myndbandakeppni 66°NORÐUR og Sony Center. Keppnin stendur til 1. nóvember og er opin öllum grunnskólanemum. Hugmyndin að keppninni kemur frá Sigurjóni Sighvatssyni, kvikmyndagerðarmanni og eiganda 66°NORÐUR en hann vill gefa börnum sem hafa áhuga á kvikmyndagerð tækifæri til þess að spreyta sig á þeim vettvangi.  Keppt verður í tveimur aldursflokkum 1. - 7. bekkur og 8. - 10. bekkur. Þema keppninnar er óveður og er nemendum í sjálfsvald sett hvernig þeir túlka þemað og útfæra myndbandið.

Dómnefndin:
66°Norður leggur metnað sinn í það að dómnefnd keppninnar sé skipuð reynslumiklum einstaklingum úr kvikmyndageiranum auk menntamálaráðherra. Dómnefnd keppninnar í ár skipa: Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, Valdís Óskarsdóttir, klippari og kvikmyndagerðarkona, Hilmar Oddsson, rektor Kvikmyndaskóla Íslands og Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri 66°NORÐUR. Þau munu fara yfir myndböndin og velja sigurvegara keppninnar. Myndböndin munu einnig vera sett á netið þar sem netkosning mun fara fram 3. - 7. nóvember og niðurstaða hennar mun vega inn í mat dómnefndar.

Verðlaunin:
Sony camera 2010Verðlaunin eru ekki af verri endanum en skóli vinningshafans mun fá Sony HDR-XR116 myndbandsupptökuvél frá Sony Center að verðmæti 170.000 kr. sem nemendur skólans hafa aðgang að auk þess sem vinningshafarnir munu fá fatnað frá 66°NORÐUR að andvirði 200.000 kr. í verðlaun.

Sony HDR-XR106 Full Hd myndbandstökuvél.

  • Full HD 1920x1080 punkta upptaka í AVCHD staðli
  • Allt að 33 klst HD upptaka á innbyggðan 80GB harðan disk
  • EXMOR CMOS myndflaga tryggir hnífskarpa mynd og mikið ljósnæmni
  • BIONZ örgjörvi bætir myndgæði og eykur vinnsluhraða
  • Carl Zeiss "Vario-Tessar" linsa
  • Steadyshot hristivörn
  • 5.1 surround hljóðupptaka

66°NORÐUR framleiðir hágæða barnafatnað úr bestu fáanlegu útivistarefnunum. Vinningshafinn/arnir fá því hlýjan og endingargóðan skólafatnaður fyrir veturinn.

Skil á myndböndum:
Myndböndin mega vera allt að tvær mínútur að lengd og skal myndbandinu skilað á Windows Media Player formi á heimasíðu 66° NORÐUR (wmv sniði eða mov-quicktime). 
Einnig biðjum við þátttakendur um að senda dvd disk með myndbandinu á;

66°NORÐUR
b.t. Helgu Viðardóttur
Miðhrauni 11
210 Garðabæ

Tækniaðstoð:
Hægt er að panta tíma hjá Sony Center í Kringlunni (588 7669) til þess að fá aðstoð varðandi tæknibúnað.

Nánari upplýsinga veitir;
Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri 66°NORÐUR
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600

Vinsamlega lesið VEL leiðbeiningar um lengd og form áður en umsókn er fyllt út.


Fylltu út formið hér fyrir neðan til að skila inn myndbandi.

Ruslpóstvörn, Vinsamlega sláðu inn tölurnar á myndinni hér að ofan
8. – 10. bekkur
1.-7. Bekkur

Veldu land : IS