Myndbandakeppni 66°NORÐUR
Myndbandakeppni grunnskólanna haldin fjórða árið í röð
Þann 1. október hefst myndbandakeppni 66°NORÐUR í fjórða sinn. Keppnin stendur í mánuð, eða til 1. nóvember og er opin öllum grunnskólanemum. Hugmyndin að keppninni kemur frá Sigurjóni Sighvatssyni, kvikmyndagerðarmanni og eiganda 66°Norður en hann vill gefa börnum sem hafa áhuga á kvikmyndagerð tækifæri til þess að spreyta sig á þeim vettvangi.
Síðastliðið haust barst fjöldi myndbanda í keppnina bæði myndbönd sem nemendur höfðu gert sjálfir og myndbönd sem unnin voru í samvinnu við kennara. Sigurvegarar í yngri flokknum komu frá Bíldudalsskóla og í eldri flokknum sigraði Lundarskóli Akureyri. Einnig voru veitt sérstök hvatningarverðlaun til Laimonas Baranauskar í Grunnskóla Þorlákshafnar fyrir vel unnið og skemmtilegt myndband.
Keppt verður í tveimur aldursflokkum 1. - 7. bekkur og 8. - 10. Bekkur og mun dómnefnd fara yfir öll myndböndin og velja sigurvegara. Í fyrra var dómnefndin skipuð þeim Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, Valdísi Óskarsdóttur, klippara og kvikmyndagerðarkonu, Hilmari Oddssyni, rektor Kvikmyndaskóla Íslands.
Dómarar að þessu sinni eru:
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra
Hilmar Oddsson, rektor Kvikmyndaskóla Íslands
Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndagerðarmaður
Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), skemmtikraftur
Myndböndum má skila inn á tímabilinu 1. október til 1. nóvember.
2. - 4. nóvember mun netkosning fara fram á heimasíðu 66°NORÐUR þar sem almenningi gefst kostur á að skoða myndböndin og velja sitt uppáhalds myndband. Niðurstaða netkosningarinnar vegur inn í mat dómnefndarinnar. Mikið er lagt upp úr því að dómnefnd keppninnar sé skipuð reynslumiklum einstaklingum úr kvikmyndageiranum
Verðlaunin í keppninni eru ekki af verri endandum en bæði skóli vinningshafa og vinningshafarnir sjálfir njóta góðs af þeim. Skóli vinningshafans fær myndbandsupptökuvél og vinningshafarnir fá fatnað frá 66°NORÐUR að andvirði 200.000 kr. í verðlaun.
REGLUR:
Þemað í ár er "Óveður" og má myndbandið ekki vera lengur en 2 mínútur.
Öll myndbönd þarf að vista á Youtube og senda svo link á myndbandið á netfangið: felix@66north.is
Mikilvægt er að skýra myndböndin svona:
Title: "Myndbandakeppni 66°NORÐUR 1.-7. bekkur" eða "Myndbandakeppni 66°NORÐUR 8.-10 bekkur"
Description: Grunnskólinn þinn og bekkur t.d. "Grunnskólinn á Hólmavík, 10 bekkur"
Tags: "66norður"
Category: "Education"
Til þess að vera gildur þátttakandi er mikilvægt að farið sé eftir þessum leiðbeiningum.
Nánari upplýsingar veitir Felix Gylfason; felix@66north.is eða 535-6600
Sýnishorn að vistun myndbands á Youtube:
