Almennar Spurningar
1. Hversu öruggt er að versla með greiðslukorti í gegnum Netið?
Til að koma í veg fyrir misnotkun kortanúmera þegar verslað er á Netinu og varna því að utanaðkomandi geti komist yfir númerin hafa ýmis öflug öryggiskerfi verið hönnuð. Netverslun 66°Norður er varin með 128-bita dulkóðunarlykli frá thawte. Um leið og viðskiptavinur ákveður að kaupa vöru fer hann inn í læst umhverfi þar sem allar upplýsingar um viðskiptin, þ.m.t. kortanúmerin eru dulkóðuð. Ógjörningur er fyrir utanaðkomandi aðila að nálgast þessar upplýsingar. Sá sem verslar í því umhverfi má vera 100% viss um að upplýsingarnar sem hann skráir eru algjörlega varðar fyrir utanaðkomandi aðilum.
2. Hvenær kemur sendingin til mín?
Um leið og þú lýkur kaupum á 66north.is er pöntun þín send til starfsmanna netverlunar sem sjá svo um að pakka vörunni eins fljótt og hægt er og senda af stað í póst. Venjulega tekur þetta ferli ekki lengur en 1 virkan dag. Starfsmenn Íslandspósts keyra síðan pakka til heimila á milli kl. 17:00-22:00 á kvöldin. Þetta þýðir að ef þú átt von á pakka eða ábyrgðarbréfi með Íslandspósti, þarftu ekki að fara á næsta pósthús til að ná í sendinguna þína heldur komum við með sendinguna heim til þín. Ef enginn er heima þegar starfsmaður Íslandspósts kemur er viðkomandi tilkynnt á hvaða pósthúsi hægt er að nálgast sendinguna.
3. Hvað geri ég ef ég vill skila vöru sem ég keypti í netverslun?
Almennur skilafrestur á vörum úr netverslun 66°Norður eru 30 dagar, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Hægt er að skila vöru gegn framvísun reiknings og fær viðkomandi inneignarnótu sem gildir í netverslun 66°Norður. Ef varan er gölluð borgar 66°Norður sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vöru en annars er sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda.
4. Hvað verður um sendingarupplýsingar og netföng sem ég skrái á vefnum?
Engar persónuupplýsingar né netföng eru seldar eða látnar í té til þriðja aðila. Netföng sem skráð eru á vef 66°Norður eru skráð á póstlista í eigu 66°Norður sem er einungis notaður til að senda áskrifendum upplýsingar um tilboð og viðburði tengda vefnum eða þjónustu 66°Norður.
5. Þessi síða er ekki að hjálpa mér!
Ef þig vantar svar við spurningu sem ekki er svarað á þessari síðu bendum við þér vinsamlegast að senda tölvupóst á 66north@66north.is




