Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Slóð:

Þjónusta

Þjónusta

Hvað getum við gert fyrir þig?

Starfsmannafatnaður merktur fyrirtækinu er öflug leið til markaðssetningar og ímyndarsköpunar.  Slíkur fatnaður sameinar innri- og ytri markaðssetningu auk þess sem hann tengir saman vörumerkið,  veitta þjónustu og gæði. Jafnframt  eykur merktur starfsmannafatnaður samhug starfsmanna og hollustu þeirra við fyrirtækið.

Fyrirtæki gefa viðskiptavinum eða starfsmönnum sínum í vaxandi mæli merktan fatnað og vörur í tengslum við ákveðin tímamót, svo sem við kynningu á nýrri vörulínu, þegar ákveðnu markmiði er náð, við ráðstefnuhald, golfmót og margt fleira.

Félagasamtök og íþróttafélög nýta sér þjónustu okkar við kaup og merkingu á fatnaði fyrir margvísleg tilefni, hvort sem er til eflingar á innra starfi félaga, til auglýsingar eða við fjáröflunarverkefni.

Hafðu samband við sölumenn okkar og þeir munu veita þér upplýsingar um þá fjölmörgu möguleika sem í boði eru. Beinn sími söludeildar er: 535 6660.

 Embla


Veldu land : IS