Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Merking á fatnaði

merkingSilkiprentun og bródering







66°NORÐUR hefur rekið eigin silkiprentsdeild frá árinu 1986 og hefur hún notið æ meiri vinsælda með árunum enda mjög fagleg og vönduð vinna sem þar fer fram. Í deildinni eru fjórar prenthringekjur í stöðugri notkun og ein ný sjálfvirk sex lita bolaprentvél ásamt svokölluðum plotter. Boðið er upp á alhliða prentun á fatnað ásamt vandaðri myndvinnslu fyrir allar tegundir silkiprentunar. Sífellt fleiri fyrirtæki notfæra sér sér þessa þjónustu merkingardeildar 66°NORÐUR enda er hverju fyrirtæki nauðsynlegt að vera sýnilegt.

Bróderingar eru mjög vinsælar og henta í sumum tilfellum betur en silkiprentun til merkingar á fatnaði. Þetta á til dæmis við um ýmsan útivistarfatnað, flís og fleiri efni. 66°NORÐUR hefur síðustu ár verið stærsta fyrirtækið í bróderingum hér á landi, með yfir 20 ísaumshausa í gangi hér og erlendis. Saumaforritin sem 66°NORÐUR notar eru mjög vönduð. Fagmenn vinna með saumaforritin og tekur vinnsla þeirra skamman tíma. Í byrjun árs 2008 festi Sjóklæðagerðin hf. kaup á Grafíksaumi ehf. og sameinuðust fyrirtækin undir merkjum Sjóklæðagerðarinnar hf. Við þessa sameiningu styrktist merkingardeild 66°NORÐUR enn frekar og býður nú upp á enn betri og fjölbreyttari þjónustu en áður.


Veldu land : IS