Sérsaumur
66°NORÐUR tekur að sér hönnun og sérsaum á fatnaði fyrir stærri fyrirtæki, stofnanir og starfshópa. Í því samhengi má nefna að 66°NORÐUR hefur um árabil þróað og framleitt fatnað fyrir Lögregluna, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, olíufélögin, Eimskip, Slysavarnarfélagið Landsbjörgu auk fleiri aðila.
Öll þróun þessa fatnaðar hefur farið fram með aðstoð og þátttöku þeirra aðila sem hlut eiga að máli. Þannig hefur 66°NORÐUR komist til móts við þarfir viðskiptavina sinna með notendavænum fatnaði sem stenst kröfur um útlit, styrkleika, notkun og verð.
