Skilmálar
Almennt
66°Norður áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta póstkröfu pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Um leið og þú lýkur kaupum á 66north.is er pöntun þín send til starfsmanna netverlunar sem sjá svo um að pakka vörunni eins fljótt og hægt er og senda af stað í póst. Venjulega tekur þetta ferli ekki lengur en 1 virkan dag. Starfsmenn Íslandspósts keyra síðan pakka til heimila á milli kl. 17:00-22:00 á kvöldin. Þetta þýðir að ef þú átt von á pakka eða ábyrgðarbréfi með Íslandspósti, þarftu ekki að fara á næsta pósthús til að ná í sendinguna þína heldur komum við með sendinguna heim til þín. Ef enginn er heima þegar starfsmaður Íslandspósts kemur er viðkomandi tilkynnt á hvaða pósthúsi hægt er að nálgast sendinguna.
Skilafrestur
Almennur skilafrestur á vörum úr netverslun 66°Norður eru 30 dagar, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Hægt er að skila vöru gegn framvísun reiknings og fær viðkomandi inneignarnótu sem gildir í netverslun 66°Norður. Ef varan er gölluð borgar 66°Norður sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vöru en annars er sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað. Lesa meira um trúnaðarstefnu og meðferð persónuupplýsinga af hálfu 66°Norður.
