Trúnaður og persónuupplýsingar
Sem gestur á vefsíðu 66°Norður getur þú verið viss um öryggi og trúnað varðandi notkun persónuupplýsinga. Um öflun og notkun upplýsinga á vef okkar hefur fyrirtækið eftirfarandi venjur:
Yfirlýsing um öryggi og trúnað
66° Norður virðir friðhelgi persónuupplýsinga um viðskiptavini sína. Tilgangurinn með þessari yfirlýsingu öryggi og trúnað er að koma því á framfæri hvers konar upplýsingum við höldum til haga um þig sem viðskiptavin, hvernig við kunnum að nota þær, hvernig við verndum þær, hvenær við getum nýtt þessar upplýsingar og hvaða val þú hefur varðandi upplýsingar um þig.
Með því að heimsækja vefinn okkar lýsir þú þig samþykkan þeim hefðum sem lýst er í núverandi yfirlýsingu um öryggi og trúnað. Ef þú hefur áður heimsótt vefinn okkar vinsamlega kynntu þér yfirlýsinguna að nýju til að fullvissa þig um að þú þekkir núverandi skilmála.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi öryggi og trúnað við meðferð upplýsinga um þig geturðu haft samband við okkur með tölvupósti á netfangið info@66north.com.
Upplýsingar sem við söfnum og eru ekki persónugreinanlegar
Upplýsingum sem ekki er hægt að tengja við einstaklinga er safnað með sjálfvirkum hætti um leið og þú kemur inn á vefinn okkar. Þar á meðal er svokölluð IP-tala þín (Internet Protocol), það er sú einkennistala sem tölvan þín fær sjálfkrafa í hvert skipti sem þú tengist við netið. Þessi tala gefur ekki til kynna nafn þitt, netfang né aðrar persónulegar upplýsingar. Við notum IP-töluna þína til þess að auðvelda okkur að greina vandamál á netþjóni okkar og í tengslum við vefstjórn.
Með svokölluðum kökum (cookies) söfnum við einnig upplýsingum sem ekki er hægt að tengja einstaklingum. Kaka er skrá staftöluorða sem vefsíða færir inn á harða diskinn á tölvunni þinni til þess að muna upplýsingar á meðan þú ferð á milli síðna innan vefsins eða þegar þú kemur aftur inn á vefinn. Við notumst við kökur til að varðveita upplýsingar um innkaupakörfuna þína á meðan þú skoðar aðrar síður á vefnum. Þegar þú hefur lokið því eru vörurnar enn í innkaupakörfunni. Við notumst einnig við kökur til að ná uppsöfnuðum upplýsingum um heimsóknir á vefinn, tíðni heimsókna og uppflettingar einstakra síðna innan vefsins. Með þessu móti getum við bætt viðmót og notagildi vefsins okkar. Þessar kökur safna ekki persónugreinanlegum upplýsingum né heldur tengjum við þær við persónuupplýsingar sem við höfum um þig.
66°Norður, auglýsendur okkar og auglýsingavefir kunna einnig að nýta kökur, sem og skrár sem kallast „Web beacons“ eða „Clear gifs“, til þess að komast að því, án tengingar við einstaklinga, hvaða auglýsingar og kynningar notendur vefsins okkar skoða og hvernig þeir bregðast við þeim. Hins vegar nýtum við þessa tækni ekki til að safna persónugreinanlegum upplýsingum.
Persónulegar upplýsingar sem við söfnum
Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi, símanúmeri og kreditkortanúmeri, í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar, svo sem kreditkortanúmer og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netfanga, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Einstaklingsupplýsingarnar af pöntunarforminu eru notaðar til að senda vörur og upplýsingar um fyrirtækið til þín. Þú getur valið að sleppa við að fá sendan póst í framtíðinni, sjá: „Hvernig hægt er að losna af póstlista eða netfangalista,“ hér að neðan.
Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér tölvupósta. Með þeim munum við upplýsa þig um þegar við setjum nýjar vörur á markað, sérstök tilboð, kynningartilboð frá samstarfsfyrirtækjum, umhverfismál sem við teljum mikilvæg og um það sem er að gerast í verslun okkar á þínu svæði. Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá fyrirtækinu en vilt hætta að fá þá, vinsamlega kynntu þér: „Hvernig hægt er að losna af póstlista eða netfangalista,“ hér að neðan.
Viðtökuheimilisfang notum við til að senda til þín vörur, vörulista og annan póst. Ef annað heimilisfang er skráð fyrir viðtöku reiknings en fyrir vörusendingar, notum við það til að fá staðfestingu á innheimtuupplýsingum. Við deilum aldrei nöfnum, heimilisföngum, netföngum eða öðrum persónugreinanlegum upplýsingum um viðskiptavini okkar. Ef þú hefur ekki áhuga á að fá senda vörulista eða annan póst frá okkur vinsamlega kynntu þér: „Hvernig hægt er að losna af póstlista eða netfangalista,“ hér að neðan.
Hvernig hægt er að losna af póstlista eða netfangalista
Um leið og þú slærð inn upplýsingar um þig á vefnum okkar býðst þér að velja að fá sendar upplýsingar frá okkur.
Fjarlæging
-
Vefurinn okkar gefur þér eftirfarandi möguleika á að fjarlægja upplýsingar um þig úr gagnagrunni okkar til að koma í veg fyrir að við höfum samband við þig í framtíðinni.
-
Þú getur sent tölvupóst á info@66north.com.
-
Þú getur sent okkur póst á með þessari utanáskrift:
66°Norður
Miðhrauni 11
210 Garðabær -
Þú getur hringt í síma 535 6600.
-
Neðst á öllum markpósti sem 66°NORÐUR sendir á póstlista sinn er einnig hnappur sem býður upp á að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlista 66°NORÐUR.
Á vefnum gefst þér einnig kostur á eftirfarandi aðgerðum til að breyta eða leiðrétta upplýsingar sem þú hefur áður látið í té:
-
Þú getur sent tölvupóst á info@66north.com.
-
Þú getur sent póst með utanáskriftinni
66°Norður
Miðhrauni 11
210 Garðabær -
Þú getur hringt í síma 535 6600.
Að versla á vefnum okkar
Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt.
Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna. Í þeim tilgangi notum við svokallaða SSL-dulritunartækni. Með SSL eru upplýsingarnar sem þú flytur frá tölvunni þinni dulritaðir yfir á vefþjón 66°Norður. Ef þú notar Netscape vafra getur þú kynnt þér öryggið í tengingu þinni með því að athuga neðst í vinstra horni vefgluggans. Ef þú notar Internet Explorer skaltu athuga reiti neðst hægra megin. Ef þú sérð heilan lykil eða lokaðan lás (fer eftir því hvaða tegund af vafra þú notar) er SSL tæknin virk.
Sumar útgáfur af vöfrum og sumir eldveggir leyfa ekki samskipti í gegnum öryggisnetþjóna. Ef þér tekst ekki að tengjast öryggisnetþjóni eða ert ekki viss um hvort tenging þín er örugg vinsamlega pantaðu þá með því að hringja í 535 6600.
