Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Viðgerða- og breytingaþjónusta

    vidgerd       Viðgerðir og breytingar á útivistarfatnaði.

66°NORÐUR rekur eigin viðgerða- og breytingaþjónustu og annast beina þjónustu við viðskiptavini sína. Rok

Viðgerðaþjónustan byggir á margra ára reynslu en í upphafi var viðgerðaþjónustan eingöngu fyrir sjófatnað en samhliða breytingum á framleiðslu fyrirtækisins breyttis viðgerðaþjónustan í alhliða þjónustu fyrir vinnufatnað á sjó og landi auk útivistarfatnaðar.

Fatnaður 66°NORÐUR er gæðafatnaður framleiddur úr vönduðum efnum af fagfólki. Það er því metnaður 66°NORÐUR að bjóða viðskiptavinum sínum samskonar gæði og þjónustu ef svo illa vill til að fatnaður skaðist í leik eða starfi og ef breyta þarf fatnaði. Viðgerða- og breytingaþjónusta 66°NORÐUR annast allan fatnað sem framleiddur er og eða seldur af 66°NORÐUR.

Viðgerðaþjónustan er til húsa að Miðhrauni 11, 210 Garðabæ en allar verslanir 66°NORÐUR taka á móti fatnaði til viðgerðar.

Vinsamlega hafið allan fatnað hreinan sem kemur í viðgerð. 

Opnunartími
Mánudaga - fimmtudaga: 08:00 - 16:00
Föstudaga: 08:00 - 15:00 

                             Verðlisti :               

Ath: Þessi verð eru til viðmiðunar. Hvert tilvik er skoðað fyrir sig.
Lágmarksverð fyrir minni breytingar er 730 kr.

Styttingar á buxum:
Vinnubuxur: 1.010 kr
Fínni buxur: 1.430 kr
Öndunarbuxur: 2.272 - 4.349 kr

Ermastyttingar:
1.387 - 3.784 kr

Rennilásar:
Við skipti á rennilásum fylgja rennilásarnir með.

Fullorðins peysur: 3.012 kr
Barna peysur: 2.127 kr
Hálfrenndar peysur: 2.115 kr
Barnapeysur: 1.575 kr
Úlpur: 3.752 - 4.500 kr


Veldu land : IS