Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Toppaðu með 66°Norður

Laugardaginn 31. maí gekk fyrri hluti hópsins úr dagskránni - Toppaðu með 66°Norður - á Hvannadalshnúk. Einn af göngugörpunum gekk með upptökuvél og útsendingarbúnað upp Hnúkinn svo hægt væri að fylgjast með framvindu göngunnar og aðstæðum á fjallinu í beinni útsendingu.

Íslenskir Fjallaleiðsögumenn Síminn 66 logo

Um toppaðu með 66°Norður

66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða upp á heildstæða og raunhæfa æfingaáætlun sem ætti að gera flestum kleift að standa á hæsta tindi Íslands, Hvannadalshnúki. Dagskrá áætlunarinnar byggist ekki eingöngu á göngum heldur er líka í boði fræðsla um hina ýmsu þætti sem hafa verður í huga þegar tekist er á við fjöll og firnindi. Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa í áranna rás verið leiðandi í því að bjóða upp á ferðir á Hvannadalshnúk og önnur fjöll landsins og búa yfir áralangri reynslu og þekkingu á því hvernig best sé að ná takmarkinu – toppnum – hverju sinni.

66°Norður hafa verið leiðandi fyrirtæki í þróun og framleiðslu alvöru útivistarfatnaðar sem nauðsynlegur er hverjum þeim sem hyggur á fjallgöngur og útivist. Þáttakendur fá þáttökukort sem gefur 25% afslátt af útivistafatnaði í verslunum 66°Noður á meðan æfingaáætlunin stendur yfir (eingöngu vörur framleiddar af 66° Norður). Að neðan má kynna sér dagskrána sem er sérstaklega hugsuð með það fyrir augum að sem flestir hafi tök á því að vera með.

Verð á heildarpakkanum er 29.900 krónur. Fyrir þá sem langar að vera með en telja sig ekki þurfa á þéttu æfingaprógrammi að halda er upplagt að skella sér á fjöllin sem hægt er að kaupa hvert fyrir sig. Verð fyrir hvert fjall er 4.900 kr nema fyrir Hvannadalshnúk sem kostar 12.500 kr. Til þess að fá Hnúkinn á þessi verði þarf að hafa farið amk á tvö af hinum fjöllunum.

Dagsetning Viðburður
6. febrúar Kynningarfyrirlestur, dagskráin, þjálfun. Ferðakynning
9. febrúar Esja (upp að steini)
13. febrúar Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður innanbæjar
20. febrúar Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður innanbæjar
27. febrúar Fræðsla, fatnaður og næring Ferðakynning
1. mars Skarðsheiði
5. mars Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
12. mars Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður innanbæjar
26. mars Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður innanbæjar
29. mars Hekla
2. apríl Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Vífilsfell
9. apríl Fræðsla, jöklaferðir, búnaður og tækni. Ferðakynning
12. apríl Eyjafjallajökull
16. apríl Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
23. apríl Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
30. apríl Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
3. maí Snæfellsjökull
7. maí Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Móskarðshnúkar
14. maí Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
21. maí Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Hengill
28. maí Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
31. maí Hvannadalshnúkur fyrri hópur
4. júní Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan
7. júní Hvannadalshnúkur seinni hópur

Fréttir tengdar verkefninu

 

4.6.2008

Toppnum náð og draumar að rætast

26.5.2008

Hátindur Íslands innan seilingar - Ganga á Hvannadalshnúk í beinni

24.4.2008

Fræðslufundur á Akureyri um útbúnað á fjöllum

7.4.2008

Jöklaferðir - fræðslufundur á miðvikudaginn kl. 20:00

28.3.2008
Fyrsti jökullinn af þremur!

18.3.2008
66°Norður klífur til að auka meðvitund um bráðnun jökla

3.3.2008
Hálfur sigur unninn!

23.2.2008
Hvannadalshnúkur 2008 - klæddu þig vel

13.2.2008
Æfingar hafnar fyrir ferðina á Hvannadalshnúk

11.2.2008
Fullt út úr dyrum á kynningarfundi vegna ferðar á Hvannadalshnúk

20.1.2008
Toppaðu með 66°Norður


Veldu land : IS