Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

  

  

  

  

  

  


66°Norður og Íslenskir fjallaleiðsögumenn klífa Hvannadalshnúk til að auka vitund almennings um hlýnun jarðar.


Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum


66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn sameina krafta sína á ný á þessu ári og bjóða upp á hina vinsælu æfingaráætlun „Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum“.


Þetta er þriðja árið sem verkefnið er í gangi og gefur fólki tækifæri til að ganga á Hvannadalshnúk, hæsta tind Íslands (2210 m), á suðurhluta Vatnajökuls, stærsta jökuls í Evrópu. Verkefnið býður göngufólki upp á frábæra lífsreynslu um leið og það lærir um umhverfislega ábyrgð. Fyrirtækin tvö leggja hart að sér að nota viðburðinn sem fræðslufarveg í þeim tilgangi að göngufólk geti fræðst um hlýnun jarðar og áhrif hennar á jökla Íslands.


Áætlunin er í tveimur þáttum:

  1. Fyrirlestrar og námskeið, þar sem þátttakendur eru fræddir um næringu, klæðnað, búnað, öryggi og umhverfislega ábyrgð.
  2. Fjórtán göngur, sem ætlað er að efla kunnáttu, öryggi, líkamlegt form og reynslu áður en haldið er á Hvannadalshnúk.

Þjálfunin hefst í febrúar og lýkur með fyrri Hnúksferðinni af tveimur, en þátttakendur geta valið um tvær dagsetningar tindastigs. Í fyrra náðu um 210 manns að standa á hæsta tindi Íslands eftir að hafa tekið þátt í æfingadagskrá Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum. Fyrirlestrarnir, leiðsögn og námskeiðin eru innifalin í þáttökugjaldinu sem er 39.900 kr. Þeir sem taka þátt í dagskránni fá 20% afslátt af fatnaði frá 66°Norður (gildir til 5. júní) og Íslenskir fjallaleiðsögumenn útvega allan sértækan búnað sem þarf í allar göngurnar. Einnig eru í boði netklúbbsverð á öll námskeið Fjallaleiðsögumanna 2010, jöklaganga í Skaftafelli fyrir tvo, 20% afsláttur af sól- og skíðagleraugum í glerversluninni Gleraugnasalan (gildir til 19. júní), ferðaávísun að upphæð 5.000 kr sem gildir í allar ferðir Fjallaleiðsögumanna (nema dagsferðir) árið 2010.

Íslenskir Fjallaleiðsögumenn og 66°Norður eru traustir samstarfsaðilar með umhverfisvitund að leiðarljósi. Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa áralanga reynslu í fjallaleiðsögn og 66°Norður er leiðandi við þróun útivistarfatnaðar sem gerir göngufólki kleift að njóta útivistar við erfiðar aðstæður.


Bóka í gönguna hér

Hægt er að skoða myndbönd úr göngunum á Youtube, þau bætast inn reglulega.


Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum – undirbúningsáætlun


3. febrúar:
Kynningar, áætlun og þjálfun. Kl. 20:00 í Faxafeni 12
10. febrúar: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Heiðmörk v/Vífilstaði. Áætl. 2 klst.
17. febrúar: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Úlfarsfell 295 m. Áætl. 2-3 klst.
20. febrúar: Laugardagur kl. 9:00. Hengill – Vörðuskegg 805 m. Áætl. 4-6 klst.
24. febrúar: Miðvikudagur kl. 20:00. Fræðsla um klæðnað, næringu og ferðalög.
3. mars: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Meðalfell í Kjós 345 m. Áætl. 3 klst.
10. mars: Miðvikudagur, þjálfun kl, 18:00: Geitafell 509 m. Áætl. 3-4 klst.
18. mars: Fimmtudagur, Háfjallakvöld 66°Norður með Michael P. Grocott
20. mars: Laugardagur kl. 08:00. Botnssúlur Norður-Súla 1053 m. Áætl. 6-8 klst.
24. mars: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Stóra-Kóngsfell 602 m. Áætl. 3-4 klst.
31. mars: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Vífilsfell 655 m. Áætl. 3-4 klst.
7. apríl: Miðvikudagur kl. 20:00. Fræðsla um jöklaferðir og jöklabúnað.
10. apríl: Laugardagur kl. 7:00. Snæfellsjökull 1446 m. Áætl. 7-9 klst.
13. apríl: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Kerhólakambur 743 m. Áætl. 2-4 klst.
28. apríl: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Móskarðshnúkar 807 m. Áætl. 3-4 klst.
8. maí: Laugardagur kl. 8:00. Skarðsheiði – Heiðarhorn 1053 m. Áætl. 6-8 klst.
12. maí: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Esja – Skálakambur 801 m. Áætl. 3-4 klst.
19. maí: Miðvikudagur, þjálfun kl. 18:00: Dýjadalshnúkur 800 m. Áætl. 3-4 klst.
29. maí: Laugardagur kl. 5:00. Hvannadalshnúkur 2110 m. Áætl. 12-15 klst.
5. júní: Laugardagur kl. 5:00. Hvannadalshnúkur 2110 m. Áætl. 12-15 klst.