Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum
|
| 8.feb | Kl. 20:00 | Kynningarfundur | Faxafen 12 | - |
| 15.feb | Kl. 17:30 | Miðvikudagsþjálfun 1 | Búrfellsgjá | 2-4 klst. |
| 22.feb | Kl. 20:00 | Ferðamennska á fjöllum | Klæðnaður, næring, skór, broddar, axir... Ferðamennska á fjöllum | - |
| 25.feb | Kl. 9:00 | Dagsferð 1 | Vörðuskeggi | 5-6 klst. |
| 29. feb | Kl. 17:30 | Miðvikudagsþjálfun 2 | Stóra Kóngsfell og Drottning | 3 klst. |
| 7.mar | Kl. 17:30 | Miðvikudagsþjálfun 3 | Helgafell í Hafnarf. með útúrsnúningi | 3-4 klst. |
| 14.mar | Kl. 17:30 | Miðvikudagsþjálfun 4 | Keilir | 3 klst. |
| 21.mar | Kl. 17:30 | Miðvikudagsþjálfun 5 | Grímannsfell | 3-4 klst. |
| 24. mar | kl. 9:00 | Dagsferð 2 | Norður og Vestur Súla frá Botnsdal | 7-8 klst. |
| 28.mar | Kl. 17:30 | Miðvikudagsþjálfun 6 | Lambafell | 3-4 klst. |
| 4.apr | Kl. 17:30 | Miðvikudagsþjálfun 7 | Vífilsfell | 3-4 klst. |
| 11.apr | Kl. 20:00 | Jöklafyrirlestur | - | |
| 14.apr | Kl. 9:00 | Dagsferð 3 | Skarðsheiði / Heiðarhorn | 7-8 klst. |
| 25.apr | Kl. 17:30 | Miðvikudagsþjálfun 8 | Dýjadalshnjúkur | 3-4 klst. |
| 1.maí | Kl. 7:00 | Dagsferð 4 | Eyjafjallajökull/Snæfellsjökull | 8-10 klst./7-9 klst. |
| 9.maí | Kl. 17:30 | Miðvikudagsþjálfun 9 | Móskarðahnúkar | 4-5 klst. |
| 19.maí | Kl. 5:00 | Hvannadalshnúkur/Hrútfjallstindar | 12-16 klst. | |
| 26.maí | Kl. 5:00 | Hvannadalshnúkur/Hrútfjallstindar | 12-16 klst. | |
| 6.jún | Kl. 17:30 | Miðvikudagsþjálfun 10 | Skálatindur í Esju | 4 klst. |
Skráning hér
Hvar og hvenær hefjast ferðirnar:
Kvöldgöngur hefjast allar fyrir utan verslun 66°NORÐUR í Faxafeni 12 kl. 17:30. Þar sem sameinast verður í bíla og ekið á áfangastað.
Dagsferðirnar hefjast einnig fyrir utan verslun 66°NORÐUR í Faxafeni.
Annað – öryggi og tryggingar:
1. IFLM áskilur sér rétt til þess að breyta út af fyrirhugaðri dagskrá ef öryggi þátttakenda þykir ógnað.
2. Allar fjallgöngur fela í sér áhættu.
3. Öryggi viðskiptavina í ferðum Fjallaleiðsögumanna er ávallt í fyrsta sæti og þess vegna leggja Fjallaleiðsögumenn mikla áherslu á hættumat og fyrirbyggjandi ráðstafanir í menntun leiðsögumanna sinna.
4. Þátttakendur eru á eigin ábyrgð í ferðum Fjallaleiðsögumanna.
5. Þátttakendum er bent á að leita sér upplýsinga um tryggingar hjá tryggingafélögum.
6. Hlutverk leiðsögufólks Fjallaleiðsögumanna er ekki að koma fólki á toppinn – heldur að allir komi heilir heim.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 535 6600 og einnig er hægt að senda fyrirspurn á felix@66north.is
*Hægt er að fá endurgreiðslu úr varasjóði VR fyrir Toppaðu með 66°NORÐUR og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum líkt og fyrir aðra líkamsrækt.
Hægt er að skoða fleiri myndbönd úr undirbúnings göngunum 2010 á Youtube.
Meðfylgjandi myndband var tekið í göngunni á Hvannadalsnhnúk 2010.











Um 66°NORÐUR
Sjóklæðagerðin - 66°NORÐUR er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°NORÐUR og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er http://www.66north.is/.
Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn
Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.
Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.
Heimasíða fyrirtækisins er http://www.mountainguide.is/.
