Um 66°NORÐUR
Sjóklæðagerðin hf. er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands. Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi. Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar og er fyrirtækið afar stolt af þeirri arfleifð sinni. Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins sem framleiddur er undir vörumerkinu 66°NORÐUR en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin í framleiðsluna.
66°NORÐUR er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því samhengi má nefna náið samstarf fyrirtækisins við björgunarsveitir landsins, Íslenska fjallaleiðsögumenn o.fl. 66°NORÐUR framleiðir útivistafatnað fyrir Slysavarnarfélagið Landsbjörgu auk þess að framleiða fatnað fyrir lögregluna og slökkviliðið en allt eru þetta aðilar sem þurfa fatnað sem er endingargóður og þolir mikið álag. Á síðustu árum hefur 66°NORÐUR sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá Sjóklæðagerðinni og fást vörur fyrirtækisins í yfir 500 verslunum í 15 löndum. Á Íslandi rekur Sjóklæðagerðin 8 verslanir undir vörumerkinu 66°NORÐUR. Þar af eru sex útivistarverslanir og tvær verslanir sem eru útsölumarkaðir og vinnufataverslanir. Þar fyrir utan rekur fyrirtækið sex verslanir undir vörumerkjum Rammagerðarinnar. Þrjár verslanir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og svo verslanir í Hafnarstræti, Akureyri og á Egilsstöðum. Auk þess er hægt að nálgast 66°NORÐUR vörur í verslunum víðs vegar um landið.
Hafðu samband.
66°NORÐUR
Miðhrauni 11
210 Garðabæ
Ísland
Kt. 550667-0299
Sími: 535 6600
Fax: 535 6601
E-mail: 66north@66north.is
