Allar vörur sem 66°NORÐUR framleiðir lúta gæðaeftirliti starfsfólks 66°NORÐUR. 66°NORÐUR ábyrgist vörur sínar að fullu í tvö ár gagnvart göllum í efni og handbragði, svo fremi að varan sé enn í eigu upprunalegs kaupanda. Komi fram bilun sem rekja má til framleiðslugalla á þessu tímabili gerum við endurgjaldslaust við vöruna, skiptum henni út fyrir nýja eða endurgreiðum hana, sýnist okkur svo. Athugaðu að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, þvotti, vanrækslu, venjulegu sliti eða eðlilegu litatapi sem verður við notkun og þegar á líður. Tjón sem ábyrgðin nær ekki til fæst gert við gegn vægu gjaldi auk sendingarkostnaðar. Vörunni skal skilað til viðgerðarþjónustu 66°NORÐUR, Miðhrauni 11, 210 Garðabæ, Íslandi, svo meta megi hvort ábyrgð taki til hennar. Allar sendingar til viðgerðarþjónustunnar þurfa að vera tryggðar og sendandi þarf að greiða sendingarkostnað. 66°NORÐUR tekur ekki ábyrgð á glötuðum sendingum. Vörur sem sendar eru til viðgerðarþjónustunnar skulu vera hreinar. Gerist þess þörf verður gjald innheimt fyrir hreinsun.
Ath: Ábyrgð þessi gildir ekki um vörur sem keyptar eru á útsölumörkuðum 66°NORÐUR eða vörur sem seldar eru á útsölu eða rýmingarsölu.
Spurningar varðandi ábyrgðarskilmála 66°NORÐUR
a. Ég keypti vöru á útsölumarkaði 66°NORÐUR. Er hún í ábyrgð?
Útsölumarkaðir 66°NORÐUR selja fatnað og búnað sem er af sérstakri gerð, hefur verið tekinn úr almennri sölu eða er lítillega útlitsgallaður, með verulegum afslætti. Ábyrgð 66°NORÐUR nær ekki til varnings sem keyptur er á útsölumörkuðum okkar. Viðgerðarþjónusta 66°NORÐUR gerir við vörur af útsölumörkuðum gegn vægu gjaldi.
b. Nær ábyrgðin yfir rifur eða göt?
Rifur, göt og brunagöt falla ekki undir ábyrgð okkar. Við vitum að jafnvel þótt vel sé hugsað um flíkur geta óvænt eða óútskýrð óhöpp átt sér stað. Ef varan þín frá 66°NORÐUR verður fyrir tjóni getur viðgerðarþjónustan okkar gert við hana gegn vægu gjaldi.
c. Nær ábyrgðin yfir venjulegt slit?
Allar okkar vörur eiga að uppfylla strangar gæðakröfur okkar. Þrátt fyrir það munu ummerki notkunar og aldurs sjást á 66°NORÐUR-vörunni þinni á endanum, burtséð frá því hversu vel þú ferð með hana. Ábyrgð 66°NORÐUR nær yfir galla á handbragði eða efni í tvö ár, en ekki yfir venjulegt slit.
d. Hvort verður gert við vöruna mína eða henni skipt út?
Komi fram bilun í 66°NORÐUR-vörunni þinni vegna galla við framleiðslu eða í handbragði er það fyrsti kostur okkar að gera við hana endurgjaldslaust. Ef ekki reynist unnt að gera við vöruna eða ef viðgerðarkostnaður er hærri en sem nemur verði nýrrar vöru, skiptum við henni út. Margir viðskiptavina okkar taka miklu ástfóstri við fatnað sinn frá 66°NORÐUR og vilja ekki að honum sé skipt út. Ef þú átt sérstakar minningar sem tengjast 66°NORÐUR-vörunni þinni og vilt því ekki að henni sé skipt út skaltu láta okkur vita.
e. Hvernig sendi ég 66°NORÐUR-vöru í viðgerð?
Ef upp koma vandamál tengd 66°NORÐUR-vörunni þinni skaltu senda okkur hana til mats og viðgerðar á eftirfarandi heimilisfang:
Viðgerðarþjónusta 66°NORÐUR
Miðhraun 11
210 Garðabær
Ísland
Við kjósum helst að vörur séu sendar til okkar í gegnum póstþjónustu sem merkir pakka með viðtökunúmeri og krefst undirskriftar við afhendingu. Gættu þess að sendingarkostnaður hafi verið greiddur og að innihald sendingarinnar sé tryggt að fullu. Settu stutt skilaboð í sendinguna þar sem fram kemur nafn þitt, símanúmer og heimilisfang. Lýstu því einnig í skilaboðunum hvar á vörunni tjónið er og merktu það á vörunni með lituðu límbandi eða þekjulímbandi svo við finnum það auðveldlega.
Gættu þess að varan sé hrein þegar þú sendir okkur hana. Óhreinar flíkur verða sendar í hreinsun áður en viðgerð hefst og gjald innheimt fyrir það. Þurfi að senda vöruna í hreinsun tefur það einnig afgreiðslu.
Við gerum okkar besta til þess að skila þér vörunni aftur sem fyrst. Tíminn sem líður frá því þú sendir vöruna og við fáum hana í hendur getur þó verið breytilegur á milli landa og sendingarleiða. Það sama á við þegar við skilum þér vörunni. Í sérstökum tilfellum getum við stundum flýtt viðgerð. Láttu okkur bara vita.
f. Á ég að tryggja vöruna þegar ég sendi hana?
Vinsamlegast tryggðu 66°NORÐUR-vöruna að fullu þegar þú sendir okkur hana. Notaðu sendingarleið þar sem sendingin er merkt með viðtökunúmeri og undirskriftar er krafist við afhendingu til þess að tryggja að varan berist örugglega til 66°NORÐUR.
g. Hver greiðir sendingarkostnaðinn?
Viðskiptavinurinn greiðir sendingarkostnað þegar vörur eru sendar til okkar. 66°NORÐUR greiðir sendingarkostnað þegar vöru er skilað aftur til viðskiptavinar. Sé þess óskað að vörunni sé skilað aftur með hraðflutningi greiðir viðskiptavinurinn aukalegan kostnað sem af því hlýst. Sendingarkostnaður vegna allra viðgerða sem ekki falla undir ábyrgð greiðist af viðskiptavini.
h. Hvað kosta viðgerðir?
Kostnaður við viðgerð á vörum sem ekki eru í ábyrgð er breytilegur og fer eftir efniskostnaði og því hversu langan tíma viðgerðin tekur okkur. Ef þú hefur áhyggjur af verðinu geturðu beðið okkur um að láta þig vita um kostnaðinn. Þegar varan hefur verið metin sendum við þér tölvupóst með verðmati og biðjum þig um að samþykkja verðið. Þú getur einnig tilgreint hámarksverð, til dæmis: „Vinsamlegast látið mig vita ef viðgerðarkostnaður fer yfir 5.000 krónur."
i. Er hægt að flýta viðgerðinni?
Í ákveðnum tilfellum, ef þú þarft á vörunni að halda fyrr en búast má við henni, getum við flýtt viðgerðinni þér að kostnaðarlausu. Ef þú vilt að viðgerðinni sé flýtt skaltu senda okkur vöruna með hraðflutningi. Merktu kassann FLÝTIMEÐFERÐ með stórum stöfum. Settu skilaboð í sendinguna þar sem þú biður um flýtimeðferð og lætur koma fram nafn þitt, heimilisfang og símanúmer. Greindu frá því hvaða viðgerða er þörf og hvenær þú þarft að fá vöruna aftur. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að varan berist þér tímanlega.
j. Hvers vegna þarf að hreinsa 66°NORÐUR-vöruna mína áður en ég sendi hana?
Við vitum að þetta getur komið sér illa en við viljum tryggja heilsu og öryggi starfsfólks viðgerðarþjónustunnar.
