Fréttir og viðburðir
15.3.2010
Fimmtudaginn 18. mars verður fyrirlestur á Nordica Hótel
Fimmtudaginn 18. mars mun 66°Norður og Félag Íslenskra FjallaLækna bjóða uppá fyrirlestur á Nordica Hótel kl. 20:00.
21.2.2010
Póstkort af Íslensku keppendunum á Vetrarólympíuleikunum 2010
Íslensku þátttakendurnir á Vetrarólympíuleikunum klæðast 66°Norður fatnaði á leikunum sem eru í Vancouver í Kanada 12.-28. Febrúar. Keppendurnir og fylgdarlið þeirra gengu inn á ólympíuleikvanginn á sjálfri setningarathöfninni klæddir í fallegan og vandaðan fatnað frá 66°Norður.
17.2.2010
Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum á Facebook
Þriðja árið í röð býður 66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn uppá tækifæri til að ganga á Hvannadalshnúk. Þátttakendur verkefnisins hafa aldrei verið eins margir og í ár, rúmlega 200 manns búnir að skrá sig. Undirbúningurinn gengur vel og ekki of seint að vera með.
12.2.2010
Elle í Belgíu fjallar um opnun verslunar 66°Norður í Belgiu
Elle Magazine fjallar um opnun verslunar 66°Norður í Belgiu. Blaðið hefur um 200.000 lesendur skv. CIM.
20.1.2010
Íslensku keppendurnir klæðast 66°Norður fatnaði á Vetrarólympíuleikunum 2010
Íslensku þátttakendurnir á Vetrarólympíuleikunum klæðast 66°Norður fatnaði á leikunum sem fram fara í Vancouver í Kanada 12.-28. febrúar nk.
10.1.2010
Toppaðu með 66°Norður
66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn sameina krafta sína á ný á þessu ári og bjóða upp á hina vinsælu æfingaráætlun „Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum“.
4.12.2009
Danaprins í konunglegri veiði
Á danska vefnum B.T. birtust myndir af Christian 4 ára danaprinsi í galla frá 66°norður. Hann var viðstaddur hinar árlegu konunglegu veiði. Sjá má að hann er vel gallaður í Rán jakka og buxum frá 66°Norður og greinilegt að merkið er að skapa sér stöðu erlendis.
24.11.2009
Verðlaunaafhending í myndbandakeppni 66°Norður
Grunnskólanemendur sýndu færni sína með myndavélarnar í keppni sem 66° Norður stóð fyrir. Menntamálaráðherra taldi sig sjá kvikmyndagerðarfólk framtíðarinnar í keppninni.
18.11.2009
Niðurstöður úr myndbandakeppninni
23.10.2009
Outside Magazine fjallar um vöru frá 66°Norður
Í nýjasta tölublaði tímaritsins Outside - Buyers Guide sem gefið er út í Bandaríkjunum, voru 293 vetrarvörur prufaðar. Fyrsta varan sem er nefnd í upptalningunni er Glymur Shoftshell buxurnar frá 66°Norður.
12.10.2009
Leiðangursstyrkur 66°Norður afhentur
66°Norður veitir árlega tvo leiðangursstyrki að andvirði 500.000 kr hvor til einstaklinga eða hópa og fela styrkirnir bæði í sér fatnað fyrir leiðangurinn og peningastyrk að upphæð allt að 200.000 kr.
5.10.2009
Upphaf að þínum kvikmyndaferli
Myndbandakeppni 66°Norður stendur ný yfir í grunnskólum landsins. 66°Norður stendur fyrir keppninni en hugmyndin að henni kemur frá Sigurjóni Sighvatssyni, kvikmyndagerðarmanni og eiganda 66°Norður en hann vildi gefa börnum sem hafa áhuga á kvikmyndagerð tækifæri til þess að spreyta sig á þeim vettvangi.
1.10.2009
Nýjar vörur í verslanir
Undanfarnar vikur hafa verslanir 66°Norður verið að fyllast af nýjum vörum. Nýjar sendingar koma reglulega á haustmánuðum og hafa viðbrögðin ekki staðið á sér. Fatnaður 66°Norður á sér langa sögu og því vel þekkt merki hjá mörgum íslendingum. Erlendir ferðamenn hafa einnig sýnt fatnaðinum mikinn áhuga og erlendir söluaðilar 66°Norður fara vel af stað inn í veturinn.
18.9.2009
Stafgöngukynning
Haldin verður stafgöngukynning þann 23. september kl. 20:00 í verslun 66°Norður, Faxafeni 12. Guðný Aradóttir stafgönguleiðbeinandi mun kynna tækni stafgöngu og uppruna hennar.
16.9.2009
Þórsmörk Parka eru komnar í verslanir
Hinar sívinsælu Parka dúnúlpur eru komnar í verslanir. Mikil eftirspurn hefur verið á þessum flíkum og ekki að ástæðulausu. Þær eru hlýjar og góðar úr gæsadún og fiðurfyllingu.
27.8.2009
Liz Hayes kynnir Ísland í 66°Norður úlpu
Ástralska útgáfan af 60 mínútum kynnir frá ástandinu á Íslandi í þætti sínum. Liz Hayes þáttastjórnandi kom til Íslands og kynnti sér málin og tók viðtal við nokkra valinkunna menn.
13.8.2009
Léttur jakki sem kemur á óvart
Nýlega komu í verslanir 66°Norður nýir jakkar fyrir fullorðna sem bera nafnið Langjökull. Hér er á ferðinni léttur jakki fyrir dömur og herra sem er fylltur með PrimaLoft® einangrun. Síðastliðið haust var 66°Norður fyrst íslenskra útivistarfyrirtækja til að nota PrimaLoft® einangrun en þá komu á markaðinn jakkar sem bera nafnið Vatnajökull. Viðtökurnar við Vatnajökli voru framar öllum vonum og því verður gaman að fylgjast með því hvernig viðtökur Langjökull fær.
11.8.2009
Leiðangursstyrkur 66°Norður
66°Norður hefur í áraraðir verið leiðandi framleiðandi útivistarfatnaðar og í ljósi þess leita margir til fyrirtækisins að leiðangursstyrkjum. 66°Norður hefur styrkt marga góða leiðangra á síðustu árum.
10.8.2009
Richard Hammond klæðist jakka frá 66°Norður
Richard Hammond, kynnir í hinum vinsæla bílaþætti Top Gear í Bretlandi kann svo sannarlega að meta fatnað frá 66°Norður. Í fyrstu tveimur þáttum nýjustu seríu Top Gear klæðist hann jakka sem ber nafnið Vindur og er vindþéttur ullarjakki með flísfóðri. Greinilegt er að Íslendingar fylgjast vel með Top Gear þáttunum því fyrirtækinu hafa borist margar ábendingar frá áhorfendum um fataval Richard Hammond þrátt fyrir að þessi þáttur hefur enn ekki verið sýndur á íslenskri sjónvarpsstöð.
6.8.2009
Skólinn byrjar á ný
Nú styttist í það að skólarnir hefji göngu sína á ný og margir foreldrar farnir að huga að því að kaupa hlýjan fatnað fyrir börnin í vetur. 66°Norður hefur látið útbúa bækling með upplýsingum um klæðnað fyrir börn ásamt hluta af barnalínu fyrirtækisins, hvort heldur sem um er að ræða ungabörn, börn á leikskólaaldri eða börn sem byrjuð eru í grunnskóla.
8.7.2009
Þvert yfir Ísland
Í dag, miðvikudaginn 8. júlí, mun Jón Gunnar Benjamínsson, sem er lamaður neðan mittis, leggja upp í fimm daga langan og erfiðan leiðangur um hálendið á fjórhjóli.
3.7.2009
Shmuley rabbíni klæðist 66°Norður
Shmuley Boteach er bandarískur rabbíni sem hefur gert garðinn frægan vestanhafs meðal annars sem stjórnandi vinsælla sjónvarpsþátta og rithöfundur. Margir heimsþekktir einstaklingar eru og hafa verið vinir Shmuley og má þar helst nefna Michael Jackson og Oprah.
15.6.2009
66°Norður verðlaunað fyrir framúrskarandi hönnun
Nýverið tilkynnti Polartec,® sem er leiðandi framleiðandi flísefnis í heiminum, hvaða fyrirtæki hlytu APEX verðlaunin í ár. Polartec® leggur mikið upp úr þróun nýjunga í efnum og í því skyni verðlaunar fyrirtækið á hverju ári þá aðila sem best ná að túlka þennan anda fyrirtækisins.
12.6.2009
Landnám í Ástralíu
Nýverið gerði 66°Norður samning við aðila í Ástralíu varðandi sölu á fatnaði frá fyrirtækinu. Nú eru fyrstu vörurnar komnar í sölu í verslunum í Ástralíu og hefur þeim verið tekið vel af áströlsku útivistarfólki sem og öðrum.
11.6.2009
Glerárdalshringurinn - Kynning á Akureyri
Kynningin á Glerárdalshringnum fer fram fimmtudagskvöldið 11. júní. kl. 20:00 hjá 66°Norður á Glerártorgi.
4.6.2009
Erlendir blaðamenn ganga á Hvannadalshnúk
Frá því í byrjun febrúar hefur stór hópur á vegum 66°Norður og Íslenskra Fjallaleiðsögumannna tekið þátt í dagskrá sem ber nafnið Toppaðu með 66°Norður og flest í því að gera sem flestum kleift að standa á hæsta tindi Íslands, Hvannadalshnúk. Nú er komið að því að hópurinn reyni að ná takmarki sínu. Hópurinn mun skiptast í tvennt og ganga á Hnúkinn í tveimur hópum annars vegar 6. júní og hins vegar 13. júní.
5.5.2009
Dregið í netleik
Í tilefni að nýju útliti heimasíðu 66°Norður efndi fyrirtækið til netleiks þar sem hægt var að vinna Urður barnafatnað. Urður línan er sérstök að því leyti að hún lítur út fyrir að vera úr bómull en er í raun úr flísefni og þornar því fljótt, heldur vel hita og andar vel.
4.5.2009
Besti nýliðinn að mati Runners World tímaritsins
66°Norður er með umboð fyrir LaSportiva skó og selur meðal annars LaSportiva hlaupaskó sem hafa unnið til verðlauna í tímaritinu Runners World. LaSportiva er ítalskt fyrirtæki sem er þekkt fyrir að framleiða hágæða gönguskó, allt frá léttum skóm upp í háfjallaskó sem henta göngu á Mt. Everest.
28.4.2009
Engin laus störf í sumar
Sjóklæðagerðin 66°Norður vill þakka öllum þeim áhugasömu einstaklingum sem hafa sótt um vinnu í hjá fyrirtækinu síðustu vikurnar. Búið er að ráða í allar stöður og því eru engin laus störf hjá fyrirtækinu eins og er.
14.4.2009
Fræðslufundur um jöklaferðir
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn og 66°Norður miðla af reynslu sinni og þekkingu á jöklaferðum.
8.4.2009
Háfjallaveiki á Monte Rosa
Í ágúst síðastliðnum tóku nokkrir læknar úr Félagi íslenskra fjallalækna þátt í vísindaleiðangri ásamt nokkrum læknum við háskólasjúkrahúsið í Lundi. Tilgangurinn var að rannsaka háfjallaveiki í næsthæsta fjalli Alpanna, Monte Rosa (4634 m). Íslensku læknarnir sem tóku þátt í leiðangrinum voru: Magnús Gottfreðsson smitsjúkdómalæknir, Engilbert Sigurðsson geðlæknir, Tómas Guðbjartsson skurðlæknir og Orri Einarsson röntgenlæknir.
3.3.2009
Fræðslukvöld 66°Norður
Fræðslukvöld og skemmtileg myndasýning verður á miðvikudaginn 4. mars kl. 20:00. En Þar munu Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fara yfir allt það sem hafa ber í huga við val á fatnaði fyrir fjallgöngur auk þess sem rætt verður um mikilvægi næringar. Tómast Guðbjartsson, læknir, mun einnig fjalla um háfjallaveiki.
18.2.2009
66°Norður vekur athygli á erlendum sýningum
66°Norður hefur undanfarið verið á sýningum víðsvegar um heiminn til að kynna nýju vetrarlínu fyrirtækisins. Stærstu sýningarnar sem fyrirtækið tók þátt í að þessu sinni voru OutDoor Retailer sem er stærsta útivistarsýning Bandaríkjanna og svo ISPO sem haldin er í München og er stærsta útivistarsýning Evrópu.
12.2.2009
Kynningarfundur fyrir Toppaðu með 66°Norður
Tæplega 300 manns mættu á kynningarfund vegna Toppaðu með 66°Norður dagskrárinnar sem 66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn standa að og miðar að því að koma sem flestum á toppinn á Hvannadalshnúk.
19.1.2009
Kuldakast 66°Norður
66°Norður var stofnað á Suðureyri við Súgandafjörð árið 1926. Í hvert skipti sem hitinn þar fer niður fyrir frostmark verður afsláttur í verslunum 66°Norður á meðan kuldakastið varir. Eftir því sem mælirinn sýnir meira frost, þeim mun meiri afsláttur er af 66°Norður vörum í verslunum okkar.
16.1.2009
Toppaðu með 66°Norður
66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða upp á heildstæða og raunhæfa æfingaáætlun, Toppaðu með 66°Norður, sem ætti að gera sem flestum kleift að standa á hæsta tindi Íslands, Hvannadalshnúk.
2.1.2009
Vörutalning í verslunum 66°Norður
Lokað verður eftirfarandi daga í verslunum 66°Norður vegna vörutalningar.
11.12.2008
Rokkstjarna klæðist 66°Norður
Breski tónlistarmaðurinn Gavin Rossdale var nýverið myndaður í Glym softshell jakka frá 66°Norður. Gavin var ásamt eiginkonu sinni tónlistarkonunni Gwen Stefani staddur á árlegu skíðamóti í Deer Valley í Utah.
8.12.2008
Opnunartími í desember
Opnunartími 66°NORÐUR verslana í Desember.
1.12.2008
Myndböndin úr myndbandakeppninni aðgengileg á netinu
Nú eru öll myndböndin sem tóku þátt í myndbandakeppni grunnskólanna aðgegnileg á heimasíðu 66°Norður; undir kaflanum "Um 66°Norður".
24.11.2008
Verðlaunaafhending í Myndbandakeppni grunnskólanna
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Menntamálaráðherra, afhenti verðlaun í Myndbandakeppni grunnskólanna í verslun 66°Norður, Faxafeni 12, laugardaginn 22. nóvember kl.11:00
17.11.2008
Úrslit í myndbandakeppni grunnskólanna
Nú liggja fyrir úrslit í myndbandakeppni grunnskólanna. Allst bárust 80 myndbönd í keppnina og var fjölbreytni myndbandanna mikil, allt frá klippimyndum að tónlistar-myndböndum.
11.11.2008
Kynningarfundur um klæðnað og útbúnað á fjöllum
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fara yfir helstu atriði í útbúnaði í tengslum við Bjart framundan dagskrá 66°Norður. Miðvikudaginn 12. nóvember kl.20:00 standa 66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fyrir kynningarfundi um útbúnað í fjallaferðum í húsakynnum 66°Norður, Faxafeni 12.
7.11.2008
Netkosningu lokið!
Lokað hefur verið fyrir netkosningu í Myndbandakeppni grunnskólanna. Við hjá 66°Norður viljum þakka öllum sem tóku þátt, með því að senda inn myndband eða kjósa, kærlega fyrir þátttökuna. Dómnefndin mun koma saman 10. nóvember og úrslit verða kynnt í viku 46.
31.10.2008
Netkosningin hafin!
Nú stendur netkosningin í Myndbandakeppni grunnskólanna sem hæst á heimasíðu 66°NORÐUR. Alls bárust 80 myndbönd í keppnina, 25 í yngri flokknum en 55 í eldri flokknum.
30.10.2008
66°NORÐUR heldur opnunarpartý CMJ tónlistarhátíðarinnar í New York
Fimmtudaginn 20. október hélt 66°NORÐUR annað árið í röð opnunarteitið Conflict of Interest X, í tengslum við CMJ tónlistarhátíðina. CMJ tónlistarhátíðin er árlegur viðburðuir í New York á þessum árstíma. 66°Norður innréttaði staðinn með íslensku þema þar sem kalt veðurfar og myndir frá Íslandi voru alsráðandi. Ljósmyndarinn Diana Levine var á staðnum og festi tónleikagesti á filmu þegar þeir prufuðu fatnað frá 66°Norður.
29.10.2008
Kisan opnar í New York
Nú í haust opnaði Kisan Concept store fyrstu verslun sína fyrir utan landsteinana. Verslunin er í New York, nánar tiltekið í hjarta Soho á 125 Green Street. Opnun Kisunnar markar nýtt upphaf sölu á kven- og barnafatnaði frá 66°NORÐUR á Manhattan.
28.10.2008
Bjart framundan með 66°Norður
Ríflega 130 manns mættu á kynningarfund vegna dagskrárinnar „Bjart framundan“ sem 66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn standa fyrir. Dagskráin er í senn spennandi og áhugaverð og er hugsuð fyrir alla þá sem vilja hreyfa sig og kynnast íslenskri náttúru í vetrarskrúða.
20.10.2008
Myndbandakeppni Grunnskólanna lokið
Nú er myndbandakeppni grunnskólanna lokið en alls bárust hátt í 100 myndbönd í keppnina alls staðar að. netkosning mun fara fram á heimasíðu 66°NORÐUR dagana 23. október – 5. nóvember þar sem hver einstaklingur getur valið eitt myndband og gefið því atkvæði sitt. (Einungis er hægt að kjósa einu sinni úr hverri tölvu). lok
14.10.2008
Bjart framundan með 66°Norður
Síðastliðið vor stóð 66°NORÐUR ásamt Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum fyrir dagskrá sem bar heitið „Toppaðu með 66°NORÐUR“ og miðaði meðal annars að því að gera almenningi kleift að ganga á Hvannadalshnúk, hæsta tind Íslands. Viðbrögðin við dagskránni voru frábær og nú hafa fyrirtækin aftur tekið höndum saman og útbúið skemmtilega dagskrá undir nafninu „Bjart framundan með 66°Norður“.
7.10.2008
Jake Gyllenhaal í Glym softshell jakka
Jake Gyllenhaal sást um helgina yfirgefa veitingastað í Lundúnum klæddur brúnum Glym Softshell jakka frá 66°Norður. Jake er í Lundúnum við tökur á Disney myndinni Prince of Persia.
2.10.2008
66°Norður verðlaunað fyrir framúrskarandi hönnun.
Embla barnajakkinn vinnur Poartec® APEX hönnunarverðlaunin. Embla og er flottur og stílhreinn barna flísjakki sem hannaður er af Bergþóru Guðnadóttur. Jakkinn er unninn er úr Polartec® WindPro® Highloft® efni sem er fjórum sinnum vindþéttara en venjulegt flísefni. Embla mun fást í öllum verslunum 66°Norður en jakkinn er væntanlegur í byrjun október.
2.10.2008
Vatnajökull PrimaLoft® - Framsækinn og nýstárlegur jakki.
Nýverið kom á markaðinn Vatnajökull PrimaLoft jakki frá 66°NORÐUR. Jakkinn er bæði framsækinn og nýstárlegur en 66°NORÐUR er fyrsti íslenski framleiðandinn sem notar PrimaLoft einangrun í útivistarfatnað.
2.10.2008
66°Norður á Sjávarútvegssýningunni.
Níunda Sjávarútvegssýninging verður haldin hátíðleg helgina 2. - 5. október í Fífunni Kópavogi. Sjóklæðagerðin 66°NORÐUR verður á sýningunni enda hefur fyrirtækið varið íslenska sjómenn gegn veðri og vindum í yfir 80 ár.
25.9.2008
Verslun Kisan í SoHO býður upp á fatnað frá 66°Norður
Verslunin Kisan sem starfrækt er á Laugaveginum opnaði systurverslun í hinu vinsæla hverfi SoHo meðan á tískuviku New York stóð. Stefna verslunarinnar er einföld - hver hlutur er valinn samkvæmt smekk eigendanna, Þórunnar Anspach og Olivier Bremond.
11.9.2008
Myndbandakeppni Grunnskólanna
15. september næstkomandi hefst myndbandakeppni 66°Norður. Keppnin stendur til 18. október og er opin öllum grunnskólanemum.
1.9.2008
66°Norður styður íslensku ólympíufarana
Þriðjudaginn 26. ágúst skrifaði 66°Norður undir þriggja ára stuðnings- og samstarfssamning við Íþróttasamband fatlaðra. Samningurinn felur meðal annars í sér að 66°Norður styrkir íþróttasambandið með fatnaði.
26.8.2008
Ný íslensk kvikmyndastjarna
Glymur jakkinn frá 66°Norður vekur athygli í hverri kvikmyndinni á fætur annarri. Nýjasta kvikmyndin sem skartar stjörnum klæddum 66°Norður fatnaði er franska kvikmyndin Humains sem frumsýnd verður í byrjun árs 2009.
21.8.2008
Vinningshafar í opnunarleik 66°Norður á Glerártorgi
Í lok júní opnaði 66°Norður nýja og glæsilega verslun á Glerártorgi á Akureyri. Í tilefni opnunarinnar var hrundið af stað skemmtilegum opnunarleik.
18.8.2008
Loksins á Selfossi
Áhugamenn um útivist og veiði á Selfossi glöddust nýverið þegar glæsileg verslun með útivistar- og veiðivörur opnaði í bænum. Verslunin, sem ber nafnið Allra veðra von, selur hágæða útivistarfatnað frá 66°Norður auk þess að vera með veiðivörur frá Nielsen.
14.8.2008
Mary krónprissessa Dana klæðist 66°Norður
Friðrik krónprins Dana fór nýverið í sumarferð til Skagen ásamt Mary krónprinsessu og börnunum þeirra tveimur Christian og Isabellu. Fjölskyldan fór í langan göngutúr meðfram ströndinni ásamt vinum fjölskyldunnar og þar klæddist Mary krónprinsessa svörtu Laugavegs dúnvesti frá 66°Norður til þess að halda á sér hita í skandinavíska sumarveðrinu.
11.8.2008
Leiðangursstyrkur 66°Norður
66°Norður hefur í áraraðir verið leiðandi framleiðandi útivistarfatnaðar og í ljósi þess leita margir til fyrirtækisins að leiðangursstyrkjum. 66°Norður hefur styrkt marga góða leiðangra á síðustu árum og má þar t.d. nefna göngu Mörtu Guðmundsdóttur yfir Grænlandsjökul til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands, göngu Leifs Arnars Svavarssonar Cho Oyu og göngu „Fimm tinda“ á hæsta fjall hvers landshluta til styrktar Sjónarhóli.
17.7.2008
Harðfiskur í pósti um alla Evrópu
Nú stendur yfir ein stærsta útivistarsýning Evrópu OutDoor en á henni sýna allir helstu útivistarframleiðendur vörur sínar fyrir sumarið 2009. Meðal þátttakenda á sýningunni að þessu sinni er 66°Norður en vakti boðskort fyrirtækisins sem sent var út fyrir sýninguna mikla athygli og þótti það frumlegt og skemmtileg.
1.7.2008
Stórsókn í Danmörku
66°Norður opnar nýja 300 fermetra sérverslun í Nørreport í haust auk þess sem fyrirtækið mun opna verslun í Magasin du Nord í Árósum . Þetta er einungis hluti af stórsókn 66°Norður í Danmörku en nýlega skrifaði fyrirtækið undir samning við Danska herinn varðandi kaup á fatnaði.
27.6.2008
Efni unnið úr Kókoshnetuskel
Nýverið kom í sölu í verslunum 66°Norður fatnaður sem unninn er úr efni sem kallast CoconaTM. Þetta efni er unnið úr kókóshnetuskel og er í raun aukaafurð úr framleiðslu kókosagna sem notaðar eru til þess að hreinsa vatn.
26.6.2008
66°Norður eykur umsvif sín á Akureyri
66°Norður hefur smám saman verið að auka umsvif sín á Akureyri en nú rekur fyrirtækið þar eina verslun auk þess sem sölufulltrúi fyrir Norðurland er staðsettur þar. Á morgun, 27. júní, mun fyrirtækið auka umsvif sín á Akureyri til muna en þá opnar ný og glæsileg útivistarverslun á Glerártorgi.
4.6.2008
Toppnum náð og draumar að rætast
130 manns náðu toppi Hvannadalshnúks á laugardag og 80 manns munu leggja á Hnúkinn næsta laugardag.
3.6.2008
Jake Gyllenhaal í Glym jakka frá 66°Norður
Í nýjasta tölublaði US Weekely sem kom út í gær er heilsíðu mynd af Jake Gyllenhaal þar sem hann klæðist svörum Glym öndunarjakka frá 66°Norður. Jake er ekki eina stjarnan sem líkar vel við fatnað 66°Norður en eins og alþjóð veit þá eru til að mynda Quinten Tarantino og Eli Roth miklir aðdáendur 66°Norður auk þess sem Scarlet Johanssen og fleiri hafa sést klæðast fatnaði frá fyrirtækinu við ýmis tækifæri.
26.5.2008
Hátindur Íslands innan seilingar - Ganga á Hvannadalshnúk í beinni
Frá því í febrúar á þessu ári hefur fjöldi fólks komið saman og gengið á sífellt hærri fjöll vegna fyrirhugaðrar göngu á Hvannadalshnúk (2 110 m) hinn 31. maí og 7. júní næstkomandi. Bein útsending verður frá göngunni fyrri daginn en þar gefst áhugasömum kostur á að fylgjast með færi og aðstæðum á fjallinu og framvindu göngunnar. Til að sjá beina útsendingu þarf að fara á heimasíðu 66°Norður, Íslenskra Fjallaleiðsögumanna eða Símans.
24.4.2008
Fræðslufundur á Akureyri um útbúnað á fjöllum
Mánudaginn 28. apríl kl. 20.00 munu Íslenskir Fjallaleiðsögumenn miðla af reynslu sinni og þekkingu á fatnaði og öðrum útbúnaði til fjallaferða í verslun 66°Norður, Glerárgötu 32, Akureyri. Á fundinum munu fjallaleiðsögumennirnir Leifur Örn Svavarsson, háfjallaklifrari og Jón Gauti Jónsson, fyrrverandi ritstjóri Útiveru kynna nauðsynlegan klæðnað og annan útbúnað til að sigrast á hæstu fjöllum landsins, en einnig draga úr reynslubrunni sínum fróðleiksmola um ferðatækni.
7.4.2008
Jöklaferðir - fræðslufundur á miðvikudaginn kl. 20:00
Miðvikudagskvöldið 9. apríl munu Íslenskir Fjallaleiðsögumenn og 66°Norður halda fræðslufund um jöklaferðir í verslun 66°Norður Faxafeni 12. Fundurinn hefst kl.20:00 og þar munu Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fara yfir þann búnað sem nauðsynlegur er til þess að ferðast af öryggi um jökla landsins.
28.3.2008
Fyrsti jökullinn af þremur!
Á morgun laugardag mun 150 manna hópur úr dagskránni „Toppaðu með 66°Norður“ ganga á Snæfellsjökul (1446 m). Snæfellsjökull er fyrsti af þremur jöklum sem hópurinn mun ganga á sem liður í undirbúningi fyrir göngu á Hvannadalshnúk í byrjun sumars.
18.3.2008
66°Norður klífur til að auka meðvitund um bráðnun jökla
66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa tekið höndum saman við að bjóða hópþjálfun fyrir göngu á Hvannadalshnjúk. Auk þess að bjóða skemmtilegt ævintýri og áskorun er markmið hópgöngunnar að auka meðvitund um þann aðsteðjandi vanda sem er bráðnun jökla.
3.3.2008
Hálfur sigur unninn!
Laugardaginn 1. mars gékk ríflega 130 manna hópur úr dagskránni „Toppaðu með 66°Norður“ á Heiðarhornið, hæsta tind Vesturlands (1.053 m). Gangan var liður í undirbúningi hópsins fyrir göngu á Hvannadalsknúk í byrjun sumars en hópurinn hittist alltaf einu sinni í viku og æfir fyrir ferðina.
23.2.2008
Hvannadalshnúkur 2008 - klæddu þig vel
66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn verða með kynningarfund um útbúnað fyrir háfjallaferðir í húsakynnum 66°Norður, Faxafeni 12, miðvikudaginn 27. febrúar kl. 20.00.
13.2.2008
Æfingar hafnar fyrir ferðina á Hvannadalshnúk
Frábærar undirtektir hafa verið við hópferðinni á Hvannadalshnúk sem 66°Norður og Íslenskir fjallaleiðsögumenn standa fyrir. Nú þegar hafa 180 manns skráð sig í ferðina á Hnúkinn og sífellt bæstist í þann góða hóp. Æfingar fyrir ferðina eru hafnar og var fyrsta æfingin síðastliðinn laugardag þar sem um 70 manns mættu og gengu saman um Elliðaárdalinn undir dyggri leiðsögn Íslenskra fjallaleiðsögumanna.
11.2.2008
Fullt út úr dyrum á kynningarfundi vegna ferðar á Hvannadalshnúk
Ríflega 300 manns mættu á kynningarfund vegna ferðar 66°Norður og Íslenskra Fjallaleiðsögumanna á Hvannadalshnúk sem haldinn var í verslun 66°Norður í Faxafeni. Mikill áhugi er fyrir ferðinni og æfingaprógraminu sem búið er að setja upp til þess að undirbúa fólk fyrir ferðina. Nú þegar hafa yfir 160 manns skráð sig en farið verður á toppinn tvo daga, annars vegar laugardaginn 31. maí og hins vegar 7. júní.
24.1.2008
66°Norður kynnir nýju vetrarlínuna sína erlendis
Nú er mikið að gerast hjá 66°Norður en fyrirtækið er á fullu að kynna nýju vetrarlínuna sína erlendis. Þessa og næstu vikur eru 3 stórar útivistarsýningar sem 66°Norður mun kynna nýju vörurnar sínar en þetta eru OR í Salt Lake City, ISPO í Munchen og svo SIA í Las Vegas.
20.1.2008
Toppaðu með 66°Norður
66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn þjálfa þig til að koma þér á toppinn Hvannadalshnjúk í byrjun júní. Það verður boðið upp á æfingaprógram og hópurinn hittist einu sinni í viku til æfinga og undirbúninga. Nokkrar helgar förum við saman á hærri fjöll s.s Heklu, Snæfellsjökul og Eyjafjallajökul.
28.12.2007
Tarantino og Eli Roth dúða sig að hætti Íslendinga
Félagarnir ásamt Eyþóri Guðjónssyni í búðinni í gær. Félagarnir Quentin Tarantino og Eli Roth til Íslands í gær til þess að vera yfir áramótin. Kannski að þeir hafi lesið veðurspána fyrir gamlárskvöld, en eitt af því fyrsta sem þeir félagar gerðu var að fara í verslun 66°Norður í Bankastræti og birgja sig upp af hlýjum og flottum fatnaði.
21.12.2007
Terminator og frú klæðast 66°Norður
Arnold Scwarzenegger ríkisstjóri Kaliforníu og kona hans Maria Shriver fá fatnað frá 66°Norður í jólagjöf. Búningahönnuður nokkur í Hollywood, kunningjakona Sigurjóns Sighvatssonar, kvikmyndaframleiðanda og eins eiganda 66°Norður leitaði til hans á dögunum af því erfiðlega gekk að finna dúnúlpu í þeirri stærð sem hana vantaði. Úlpan átti vissulega að vera í stærri kantinum, enda ætluð sem jólagjöf handa Terminatornum sjálfum.
19.12.2007
Forstjóri Universal Pictures verslar jólagjafirnar hjá 66°Norður
Það eru ekki eingöngu íslendingar sem gera sér grein fyrir ágæti 66°Norður og hefur hróður fyrirtækisins borist víða. Nýverið bættust hjónin Ron og Kelly Meyer í hóp ánægðra viðskiptavina 66°Norður en Ron er forstjóri Universal Pictures.
5.12.2007
Fatnaður frá 66°Norður í bandarískri stórmynd
Anita Briem klæðist útivistarfatnaði frá 66°Norður í kvikmyndinni A Journey to the Center of Earth og leikur hún þar á móti stórleikaranum Brendan Fraser.
7.11.2007
Leifur Örn á Cho Ouy - Mynda og fyrirlestraköld 12. nóvember kl. 20:00 í Salnum Kópavogi
Einn reyndasti fjallamaður Íslendinga, Leifur Örn Svavarsson vann það afrek aðfararnótt 2. október sl. að standa á hátindi sjötta hæsta fjalls jarðar, Cho Oyu (8201m). Það krefst mikillar elju að klífa fjöll yfir 8.000 metra og margt sem getur farið úrskeiðis. Leifur Örn, sem er sjötti Íslendingurinn til að rjúfa 8000 metra múrinn rekur ferðasöguna í máli og myndum og segir m.a. frá baráttu við hæðarveiki, hugrökku leiðangurfólki, lífinu í Tíbet og útsýninu á toppi fjallsins.
21.9.2007
Tarantino með húfu frá 66°Norður á höfðinu
Leikstjórinn og íslandsvinurinn Quentin Tarantino sat fyrir í breska tímaritinu Telegraph á dögunum með húfu frá 66°Norður á höfðinu. Hann var einnig með sömu húfu á höfðinu þegar hann mætti í viðtal í spjallþætti Jonathans Ross á BBC á dögunum.
30.8.2007
Vöxtur í starfsemi erlendis: 66°Norður opnar verslanir í Kaupmannahöfn og Vilnius í Litháen
Sjóklæðagerðin 66°Norður hefur haslað sér völl erlendis bæði með rekstri verslanna og verksmiðja. Nú hafa umsvifin aukist enn frekar með opnun tveggja nýrra verslana undir merkjum 66°North. Fyrirtækið er stærsti framleiðandi útivistarfatnaðar á Íslandi.
13.7.2007
Staða 66°Norður styrkist á N-Ameríkumarkaði í kjölfar opnunnar skrifstofu í New York
66°Norður hefur stofnað dótturfélagið 66°North USA til að sinna málum fyrir Norður Ameríkumarkað. Síðustu 5 ár hefur félagið haft þarlendan dreifingaraðila sem sá um sölu- og dreifingarmál fyrir Bandaríkin og Kanada. Ákvörðun var tekin að halda því fyrirkomulagi ekki áfram og opna í staðinn sérstakt dótturfyrirtæki með skrifstofu í New York.
8.6.2007
Vinningshafar í happdrætti 66°Norður og SPRON
Laugardaginn 2. júní var sett Íslandsmet í Esjugöngu. 5tinda hópurinn stóð fyrir uppátækinu en vildu þeir með því vekja athygli á göngu sinni til styrktar Sjónarhóls á 5 hæstu tinda hvers landshluta nú um helgina.
8.6.2007
Hönnunarkeppni 66°Norður og Listaháskóla Íslands
66°Norður stóð að keppni meðal nema í fatahönnun og grafískri hönnun í Listaháskóla Íslands um hönnun á grafík til þess að setja á fatnað 66°Norður.
26.5.2007
66°Norður styrkir 5tinda og Sjónarhól
5tindar er hópur fólks sem ætlar sér að ganga á hæsta fjall í hverjum landshluta á aðeins einni helgi til styrktar Sjónarhóli. Allir í hópnum eru óvanir fjallgöngu þannig að þetta er mjög krefjandi og metnaðarfullt verkefni. Gengið verður á öllum tímum sólarhringsins og því þarf hópurinn að þola öll hugsanleg veðurskilyrði sem á vegi þeirra verða.
26.5.2007
Marta Guðmundsdóttir gengur í 66°Norður til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.
Marta Guðmundsdóttir er um þessar mundir að ganga á 66°breiddargráðu norður þvert yfir Grænlandsjökul til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Marta lauk nýverið erfiðri meðferð við krabbameini í brjósti og er markmið ferðarinnar að safna fé til rannsókna á brjóstakrabbameini og vekja konur til umhusunar um mikilvægi þess að fara reglulega í skoðun.
26.5.2007
Marta Guðmundsdóttir gengur 66° breiddargráðu norður til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands
20.4.2007
Ný og glæsileg verslun í Smáralind
66°Norður opnaði í dag nýja og glæsilega 130 m2 verslun í Smáralindinni. Þar með eru verslanir 66°Norður orðnar sjö talsins, sex á höfuðborgarsvæðinu og ein á Akureyri. Með opnuninni er dreifing verslananna um höfuðborgarsvæðið orðin mjög góð og hefur 66°Norður þannig komist til móts við óskir viðskiptavina sinna.
3.4.2007
Dagný Linda í 5 sæti á sænska meistaramótinu - fær fatnað frá 66°Norður í verðlaun
Dagný Linda Kristjánsdóttir, landsliðskona á skíðum, lenti í fimmta sæti í Alpa- tvíkeppni á sænska meistaramótinu. 66°Norður styrkir íslenska landsliðið í skíðaíþróttum og því kom það skemmtilega á óvart þegar Dagný Linda fékk peysu frá 66°Norður í verðlaun fyrir árangurinn.
23.3.2007
66°Norður tilnefnt til alþjóðlegra verðlauna
Fimm flíkur frá 66°Norður hafa verið tilnefndar til Polartec® APEX verðlaunanna 2007. Polartec® óskar 66°Norður og hönnuðum þess til hamingju með þessa viðurkenningu.
28.2.2007
Tvær auglýsingar tilnefndar til auglýsingaverðlauna ÍMARK
ÍMARK, samtök íslensks markaðsfólks heldur sína árlegu auglýsingasamkeppni þann 2. mars næstkomandi. Þar eru tvær auglýsingar frá 66°Norður tilnefndar til verðlauna. Auglýsingin “Kaldastríðið” sem er tilnefnd í flokki dagblaðaauglýsinga og auglýsingin “Patreksfjörður” sem er tilnefnd í flokki Tímaritaauglýsinga.
20.2.2007
66°Norður vekur athygli erlendra fjölmiðla
Fremsti flís-framleiðandi í heiminum kynnir byltingarkennt efni og fær íslenska útivistarfataframleiðandann 66°Norður með sér í heimskynningu á efninu. Nýlega var ISPO, stærsta vetraríþróttavörusýning í heiminum haldin í Munchen í Þýskalandi. Þar komu saman allir helstu framleiðendur og kaupendur á íþótta- og útivistarvörum og kynntu nýjungar í greininni. Ein af þeim nýjungum sem var kynnt á sýningunni og fékk hvað mesta athygli var umhverfisvænt flísefni gert úr kornolíu, það fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
19.1.2007
Vefur 66°Norður tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna
Þann 18. janúar afhendi Geir H. Haarde, forsætisráðherra Íslands, íslensku vefverðlaunin við hátiðleg athöfn í IÐNÓ. Vefur 66°Norður var tilnefndur í flokknum besti fyrirtækisvefurinn og viljum við óska þeim sem komu að uppsetningu á vefnum til hamingju með þennan árangur og um leið þakka fyrir ánægjulegt samstarf.
30.11.2006
Sjóklæðagerðin 66°Norður 80 ára
Sjóklæðagerðin 66°Norður er 80 ára um þessar mundir. Rúmlega 300 manns starfa nú hjá fyrirtækinu sem rekur verslanir og verksmiðjur í nokkrum löndum. Hönnun og markaðssetning 66°Norður hefur vakið athygli víða og verið verðlaunuð bæði hér á landi og erlendis.
9.10.2006
Vöxtur í starfsemi 66°Norður erlendis
Sjóklæðagerðin 66°Norður hefur haslað sér völl með rekstri verksmiðja og verslana í Lettlandi og hefur nú aukið enn á umsvifin þar með opnun á fjórðu versluninni í Riga, höfuðborg Lettlands. Verslunin er í AZUR, nýrri 25.000 fermetra verslunarmiðstöð. Auk fjögurra verslana í Riga starfrækir fyrirtækið tvær verksmiðjur í Lettlandi og er vörumerkið 66°Norður því orðið vel þekkt þar í landi.
5.10.2006
66°Norður í GQ og SKI Magazine
Vörumerkið 66°Norður hefur að undanförnu fengið jákvæða athygli í allmörgum erlendum fjölmiðlum. Fjallað er með lofsamlegum hætti um framleiðslu fyrirtækisins í nýjustu heftum tímaritanna GQ og SKI Magazine.
24.8.2006
GQ Music - september 2006
Í nýjasta tölublaði (september) GQ Music í Bretlandi er fjallað um hvað hægt sé að gera og sjá á sólarhring í Reykjavík.
23.8.2006
Nýr forstjóri 66°Norður
Halldór G. Eyjólfsson hefur verið ráðinn í starf forstjóra Sjóklæðagerðarinnar – 66°Norður.
22.8.2006
66°Norður og Íslenskir fjallaleiðsögumenn
Sjóklæðagerðin 66°Norður og Íslenskir fjallaleiðsögumenn hafa gert samstarfssamning um hönnun, prófun og þróun útivistarfatnaðar. Tvö kraftmikil og leiðandi fyrirtæki sameina þannig krafta sína.
21.8.2006
ABC kort
66°NORÐUR veitir 10% afslátt af öllum vörum þegar greitt er með ABC kreditkorti.
20.8.2006
ÍMARK Lúðurinn 2006
Íslenski markaðsdagurinn var haldinn 24. febrúar og voru auglýsingar 66°Norður tilnefndar í þremur flokkum á 20 ára afmæli ÍMARK: Flokki tímaritaauglýsinga, flokki dagblaðaauglýsinga og flokki veggspjalda.
1.8.2006
Glæsileg verslun 66°Norður opnuð í SoHo-hverfi í New York
Fyrsta nóvember næstkomandi verður opnuð ný verslun 66°Norður í SoHo, í hjarta New York-borgar innan um verslanir heimsþekktra vörumerkja á borð við Prada.
31.7.2006
66°Norður hlýtur APEX 2005 verðlaunin
Hvert ár verðlaunar Polartec® þau fyrirtæki sem þeim finnst nýta Polartec® efnin á nýlegan og frumlegan hátt. Polartec® APEX verðlaunin eru veitt hönnuðum og fyrirtækjum sem bjóða upp á framúrskarandi vörur sem unnar eru úr Polartec® efnunum.
30.7.2006
Sjóklæðagerðin kaupir Rammagerðina
Sjóklæðagerðin hf, hefur í dag (1. júní 2005) keypt allt hlutafé í Rammagerðinni ehf. Rekstur Rammagerðarinnar verður óbreyttur fyrst um sinn en nyjir eigendur hyggjast nýta tækifæri sem myndast með vaxandi ferðamannastraum til Íslands og styrkja verslanir félagsins þegar fram líða stundir.
29.7.2006
Íslenskir atvinnumenn á samning hjá 66°Norður
66°Norður hefur gert þriggja ára samning við Birgi Leif Hafþórsson, Ólaf Má Sigurðsson og Ólöfu Maríu Jónsdóttur, en þau eru öll að reyna fyrir sig í atvinnumennskunni í golfi.
28.7.2006
Ný verslun opnuð í Bankastræti 5
Ný 66°Norður verslun var opnuð fimmtudaginn 12. maí í Bankastræti 5. Verslunin er hönnuð af Kevin Brinkworth.
27.7.2006
Við fengum Lúður!
Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin 2004 voru veitt í Háskólabíó, föstudaginn 25. febrúar. Auglýsingar 66°Norður voru tilnefndar til verðlauna í 5 flokkum: dagblaðaauglýsingar, tímaritaauglýsingar, veggspjöld, umhverfisgrafík og auglýsingaherferðir.
26.7.2006
66°Norður framleiðir fatnað fyrir ÍAV
Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) hafa gert samning við 66°Norður um kaup á vinnufatnaði fyrir starfsmenn sína næstu 3 árin. Samningurinn var gerður að undangengnu útboði og nær það yfir allan fatnað og merkingar hans.
25.7.2006
Grein um útrás 66°Norður í The Wall Street Journal
Grein um útrás 66°Norður birtist á forsíðu "Marketplace" í The Wall Street Journal 28. janúar 2005 undir fyrirsögninni "Fashion Taps a New Cool Backdrop - Iceland".
24.7.2006
66° Norður framleiðir fatnað fyrir starfsmenn SHS
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) hefur samið við 66° Norður um framleiðslu vinnufatnaðar starfsmanna til næstu fjögurra ára. Samningurinn var gerður að undangengnu útboði og nær til alls vinnufatnaðar nema eldgalla, eiturefnagalla og búninga kafara liðsins. Verðmæti samningsins nemur um 13 milljónum króna á ári.
23.7.2006
Auglýsingaherferðina "Klæddu þig vel" vinnur evrópsku auglýsingaverðlaunin
Auglýsingastofan Jónsson & Le´macks hefur unnið evrópusku auglýsingaverðlaunin, EPICA, fyrir auglýsingaherferðina „Klæddu þig vel“ fyrir 66° norður. Herferðin er röð dagblaða- og tímaritaauglýsinga sem sýna vel klædda Íslendinga í þungri og hrikalegri íslenskri veðráttu.
22.7.2006
Vefur 66°Norður tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna 2004
Vefur 66°Norður hefur verið tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna 2004 í flokknum "Besti fyrirtækisvefurinn". Ásamt vef 66°Norður í þessum flokki eru vefir Baugs, Actavis, KB banka og Landsbankans.
21.7.2006
66°Norður hlýtur Polartec® APEX 2004 verðlaunin
Hvert ár verðlaunar Polartec® þau fyrirtæki sem þeim finnst nýta Polartec® efnin á nýlegan og frumlegan hátt. Polartec® APEX verðlaunin eru veitt hönnuðum og fyrirtækjum sem bjóða upp á framúrskarandi vörur sem unnar eru úr Polartec® efnunum.
20.7.2006
Sex Tindar Ekvador
Það er undarlegt að standa á miðbaug og fjær miðju jarðar en nokkurs staðar á öðru svæði jarðar, í 6.300 m hæð og horfa á ekki bara sólaruppkomuna heldur líka tvö eldgos og marga 4.500 til 6.000 m háa tinda.
19.7.2006
66°Norður klæðir Skíðasamband Íslands
Skíðasamband Íslands hélt blaðamannafund þann 30 desember í verslun 66°Norður í Kringlunni. Þar var skrifað undir samninga við 66°Norður varðandi fatnað fyrir landslið Íslands í alpagreinum, við Icelandair og við Falke.
11.7.2006
Útivistarlínan sýnd í Bandaríkjunum
Útivistarlína 66°Norður var sýnd í fyrsta sinn í BNA í lok janúar 2004 á útivistarsýningunni "Outdoor Retailer" sem haldin var í ólympíubænum Salt Lake City í Utah.