Fréttir og viðburðir
26.5.2007
Marta Guðmundsdóttir gengur í 66°Norður til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.
Marta Guðmundsdóttir er um þessar mundir að ganga á 66°breiddargráðu norður þvert yfir Grænlandsjökul til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Marta lauk nýverið erfiðri meðferð við krabbameini í brjósti og er markmið ferðarinnar að safna fé til rannsókna á brjóstakrabbameini og vekja konur til umhusunar um mikilvægi þess að fara reglulega í skoðun. Á meðan á göngunni stendur mun Marta blogga um ferðina á mbl.is auk þess sem seld verða póstkort til styrktar Krabbameinsfélaginu en þau mun Marta póstleggja í Tassilaq að göngu lokinni. Eins og gefur að skilja er þetta mikið þrekvirki sem Marta er að ráðast í og góður klæðnaður skiptir sköpum. Marta leitaði til 66°Norður til þess að styrkja þetta góða málefni þar sem hún þarf hágæða fatnað sem veitir henni hámarks vörn gegn veðrum og vindum í ferðinni um leið og hreyfigetan þarf að vera fullkomin.
„Ég er mjög ánægð með fatnaðinn frá 66°Norður og kom hann sér vel í æfingaferðinni til Noregs. Þar notaði ég öll þrjú lögin af fatnaði sog náðu þau að halda mér vel heitri þegar frostið fór niður fyrir 30°C. Glymur gallinn var frábær, andaði vel og það er auðvelt að hreyfa sig í honum”.
Hægt er að kaupa póstkort til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands á www.krabb.is.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin – 66˚Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66˚ Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
