Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

26.5.2007

66°Norður styrkir 5tinda og Sjónarhól

5tindar5tindar er hópur fólks sem ætlar sér að ganga á hæsta fjall í hverjum landshluta á aðeins einni helgi til styrktar Sjónarhóli. Allir í hópnum eru óvanir fjallgöngu þannig að þetta er mjög krefjandi og metnaðarfullt verkefni. Gengið verður á öllum tímum sólarhringsins og því þarf hópurinn að þola öll hugsanleg veðurskilyrði sem á vegi þeirra verða. Hópurinn leitaði til 66°Norður til þess að styrkja þetta góða málefni vegna þess að fyrirtækið framleiðir hágæða fatnað fyrir íslenskar aðstæður. Framleiðslan byggir á áratuga reynslu og þekkingu og þar sem hópurinn er óvanur fjallgöngum þá leituðu þau til sérfræðinga varðandi klæðnað og því varð 66°Norður fyrir valinu. 66°norður er aðalstyrktaraðili hópsins og styrkir hann meðal annars með alklæðnaði á alla meðlimi hópsins auk þess að gefa góð ráð fyrir ferðina.

„Við undirbúning ferðarinnar höfum við gengið víða og fatnaðurinn frá 66°Norður hefur komið sér frábærlega. Hengill göngubuxurnar eru mjög þægilegar og góðar fyrir göngferðirnar á Esjuna. Tindur flíspeysan var meiriháttar hlý og Bláfell skelin veitti frábæra vörn um leið og hún andaði vel í ferðinni á Hvannadalshnuk í apríl”. Leifur Dam Leifsson

Hægt er að fræðast meira um 5tinda og verkefnið á www.5tindar.is

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin – 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


Veldu land : IS