Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

8.6.2007

Hönnunarkeppni 66°Norður og Listaháskóla Íslands

Hönnunarkeppni 66°Norður og Listaháskóla Íslands66°Norður stóð að keppni meðal nema í fatahönnun og grafískri hönnun í Listaháskóla Íslands um hönnun á grafík til þess að setja á fatnað 66°Norður.

Nýlega voru veitt verðlaun í hönnunarkeppni 66°Norður og Listaháskóla Íslands. Hugmyndin að keppninni kom frá Sigurjóni Sighvatssyni eiganda 66°Norður í tilefni að 80 ára afmæli fyrirtækisins á síðasta ári. Þátttakendur í keppninni voru nemendur á öðru ári í fatahönnun og grafískri hönnun í Listaháskóla Íslands.

Þátttakendur áttu að hanna grafík á fatnað 66°Norður og voru þeim veittar frjálsar hendur við útfærsluna svo fremi að hönnunin tengdist 66°Norður á einhvern hátt. Margar skemmitlegar og frumlegar hugmyndir komu fram og þótti forráðamönum 66°Norður gaman að sjá hversu margir frambærilegir hönnuðir eru við nám í Listaháskóla Íslands. Sigurveragri keppninnar að þessu sinni var Sigurður Oddson og líkaði dómnefndinni vel metnaður hans og frumleiki hönnunarinnar. Í öðru sæti var Eva María Arnardóttir og í þriðja sæti hafnaði Inga Björk Andrésdóttir. Allir vinningshafarnir fengu vegleg peningaverðlaun frá 66°Norður. Fyrsta sætið hlaut 150.000 kr. annað sætið 75.000 kr. og þriðja sætið 25.000 kr.

Þetta er í fyrsta skipti sem 66°Norður og Listaháskólinn vinna saman að verkefni sem þessu en var það samhljóma álit allra sem stóðu að keppninni að hún hefði heppnast vel og því aldrei að vita nema að keppnin verði endurtekin.

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin – 66˚Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66˚ Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


 


Veldu land : IS