Fréttir og viðburðir
8.6.2007
Vinningshafar í happdrætti 66°Norður og SPRON
Laugardaginn 2. júní var sett Íslandsmet í Esjugöngu. 5tinda hópurinn stóð fyrir uppátækinu en vildu þeir með því vekja athygli á göngu sinni til styrktar Sjónarhóls á 5 hæstu tinda hvers landshluta nú um helgina.
SPRON og 66°Norður eru aðalstyrktaraðilar 5tinda hópsins og allir þeir sem tóku þátt í Íslandsmetinu fóru sjálfkrafa í pott sem dregnir voru úr veglegir vinningar.
Vinningshafarnir voru:
1. Vinningur - 30.000 króna úttekt í 66° Norður
Jóhanna Hulda Jónsdóttir
2. Vinningur - 15.000 króna úttekt í 66° Norður
Davíð Örn Ingason
3.-5. Vinningur - 5000 króna úttekt í 66° Norður
Svanþór Laxdal
Samúel Þ. Drengsson
Klara Hallgrímsdóttir
Vinningshafar geta vitjað vinninga á skrifstofu 66° Norður í Miðhrauni 11, 210 Garðabæ.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66˚Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66˚ Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.




