Fréttir og viðburðir
13.7.2007
Staða 66°Norður styrkist á N-Ameríkumarkaði í kjölfar opnunnar skrifstofu í New York
- Fyrirtækið leggur meiri áherslu á Norður-Ameríku markað í framtíðinni.
66°Norður hefur stofnað dótturfélagið 66°North USA til að sinna málum fyrir Norður Ameríkumarkað. Síðustu 5 ár hefur félagið haft þarlendan dreifingaraðila sem sá um sölu- og dreifingarmál fyrir Bandaríkin og Kanada. Ákvörðun var tekin að halda því fyrirkomulagi ekki áfram og opna í staðinn sérstakt dótturfyrirtæki með skrifstofu í New York.
“Með þessu móti höfum við fullt vald á vörumerkinu, verðlagningu og stöðu á markaðnum” segir Halldór G. Eyjólfsson forstjóri 66°Norður. “Þetta er næsta skref í að ná enn meiri útbreiðslu og árangri á þessum gríðarlega stóra og samkeppnisharða markaði”.
Útrás fyrirtækisins hefur verið hröð undanfarið og hefur fyriritækið aukið útflutning stórlega. Í dag flytur 66°Norður út vörur til 15 landa. “Þessi hraða uppbygging er afrakstur þeirrar markaðs- og hönnunarvinnu sem við höfum verið að vinna í undanfarin ár. Í dag er fer mest af framleiðslu fyrirtækisins fram í tveimur verksmiðjum sem við eigum í Lettlandi og vinna rúmlega 200 manns hjá 66°Norður þar. Miðað við aukningu á sölu, bæði hér heima og erlendis þurfum við að finna lausn á framleiðslumálum fyrirtækisins í náinni framtíð, því í dag erum við að fullnýta þessar tvær verksmiðjur okkar.”
Aðspurður segist Halldór lítið vilja segja um opnun búðar í New York, en margir muna eftir þegar 66°Norður opnaði tímabundna verslun á Manhattan fyrir tæpum 2 árum. Hann segir þó að fyrirtækið stefni að opnun nokkurra búða í Evrópu á næstunni og að útrás Íslendinga í Danmörku sé síður en svo búin, án þess að vilja þó fara nánar út í það. “Það eru spennandi tímar framundan hjá 66°Norður, bæði hér heima og erlendis” segir Halldór ennfremur og segir að spenanndi fréttir af fyrirtækinu munu berast fljótlega.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66˚Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66˚ Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is
