Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

30.8.2007

Vöxtur í starfsemi erlendis: 66°Norður opnar verslanir í Kaupmannahöfn og Vilnius í Litháen

Sjóklæðagerðin 66°Norður hefur haslað sér völl erlendis bæði með rekstri verslanna og verksmiðja. Nú hafa umsvifin aukist enn frekar með opnun tveggja nýrra verslana undir merkjum 66°North. Fyrirtækið er stærsti framleiðandi útivistarfatnaðar á Íslandi.

Vörur frá 66°Norður eru seldar í verslunum í 15 löndum bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Nú hefur vörumerkið styrkt stöðu sína enn frekar með opnun tveggja nýrra verslanna undir vörumerkinu 66°North annars vegar í Litháen og hins vegar í Danmörku.

Verslunin sem nú hefur verið opnuð í Kaupmannahöfn er sú fyrsta sem opnuð er undir merkinu 66°North í Danmörku og með opnuninni er farið að óskum viðskiptavina 66°Norður sem lengi hafa beðið eftir verslun í Danmörku. Verslunin er staðsett í gömlu sláturhúsi í miðbæ Kaupmannahafnar og er stíllinn á henni hrár með tilvísun í gamla tímann með innréttingum. Milkil eftirvænting er fyrir opnuninni í Kaupmannahöfn og hafa til dæmis verið framleiddir sérstakir númeraðir 66°North bolir sem einungis verða seldir í þessari einu verslun í skammann tíma.

Í byrjun september opnar einnig verslun í Vilnius höfuðborg Litháen. Þetta er önnur verslunin sem opnuð er undir vörumerkinu 66°Norður í Litháen og hefur vörum fyrirtækisins verið tekið vel þar í landi. Stöðug söluaukning hefur verið síðan vörumerkið var fyrst kynnt þar í landi og er búist við að nýja búðin auki enn á hróður vörumerkisins í Eystrasaltslöndunum. Þá rekur 66°Norður eina verslun í Lettlandi auk þess að reka tvær verksmiðjur þar í landi.

Heimilisfang verslunarinnar í Danmörku er: Ravnsborg Tværgade 3B, 2200 Køvenhavn N.
Heimilisfang verslunarinnar í Litháen er: Konstitucijos pr. 16, Vilnius, Lithuania.

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66˚Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66˚ Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is