Fréttir og viðburðir
21.9.2007
Tarantino með húfu frá 66°Norður á höfðinu
Leikstjórinn og íslandsvinurinn Quentin Tarantino sat fyrir í breska tímaritinu Telegraph á dögunum með húfu frá 66°Norður á höfðinu. Hann var einnig með sömu húfu á höfðinu þegar hann mætti í viðtal í spjallþætti Jonathans Ross á BBC á dögunum.
Við hjá 66°Norður erum að vonum mjög ánægð með þessa góðu auglýsingu og teljum að með þessu uppátæki Tarantinos sé hægt að ná til mun breiðari hóps fólks með vörur 66°Norður.

Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66˚Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66˚ Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
