Fréttir og viðburðir
5.12.2007
Fatnaður frá 66°Norður í bandarískri stórmynd
Anita Briem klæðist útivistarfatnaði frá 66°Norður í kvikmyndinni A Journey to the Center of Earth og leikur hún þar á móti stórleikaranum Brendan Fraser. „Anita leikur Íslending og er því auðvitað í íslenskum útivistarfatnaði," segir Helga Viðarsdóttir, framkvæmdarstjóri markaðssviðs en fatnaður 66°Norðurs hefur á undanförnum árum verið að hasla sér völl meðal kvikmyndastjarnanna og nýlega var bandaríski leikstjórinn Quentin Tarantino með húfu frá 66°Norður á forsíðu breska blaðsins Telegraph. Anita leikur íslensku leiðsögukonuna Hönnu sem heldur í mikla hættuför með Fraser og þar kemur Snæfellsjökull töluvert við sögu en myndin er byggð á víðfrægri vísindaskáldsögu Jules Verne sem hét einmitt upp á íslensku „Leyndardómar Snæfellsjökuls".
A Journey to the Center of Earth verður frumsýnd næsta sumar og er búist við því að hún gæti orðið mikill smellur. Myndbrot úr myndinni hefur verið sýnt á undan Bjólfskviðu í Bandaríkjunum og hefur þegar vakið mikla athygli.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66˚Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66˚Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
