Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

19.12.2007

Forstjóri Universal Pictures verslar jólagjafirnar hjá 66°Norður

Forstjóri Universal Pictures verlsar jólagjafirnarÞað eru ekki eingöngu íslendingar sem gera sér grein fyrir ágæti 66°Norður og hefur hróður fyrirtækisins borist víða. Nýverið bættust hjónin Ron og Kelly Meyer í hóp ánægðra viðskiptavina 66°Norður en Ron er forstjóri Universal Pictures. Hjónin keyptu jólagjafir handa fjölskyldu sinni og vinum á netverslun okkar en fyrir valinu urðu Glymur þriggja laga öndunarjakkar, Esja Parka úlpa og Þórsmörk Parka dúnúlpa.

Talsmaður hjónanna segir að þau séu mjög ánægð með flíkurnar og vonandi verða þeir sem þær fá það einnig. Meyer hjónin eru ekki þau einu sem hafa keypt 66°Norður fatnað í jólagjafir en í fyrra keypti Yoko Ono eitthundrað Þórsmörk Parka dúnúlpur í jólagjafir.

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


Veldu land : IS