Fréttir og viðburðir
21.12.2007
Terminator og frú klæðast 66°Norður
Arnold Scwarzenegger ríkisstjóri Kaliforníu og kona hans Maria Shriver fá fatnað frá 66°Norður í jólagjöf. Búningahönnuður nokkur í Hollywood, kunningjakona Sigurjóns Sighvatssonar, kvikmyndaframleiðanda og eins eiganda 66°Norður leitaði til hans á dögunum af því erfiðlega gekk að finna dúnúlpu í þeirri stærð sem hana vantaði. Úlpan átti vissulega að vera í stærri kantinum, enda ætluð sem jólagjöf handa Terminatornum sjálfum.
Schwarzenegger er ekki sá eini sem fær íslenskan útivistafatnað í jólagjöf. Á dögunum keyptu forstjóri Universal kvikmyndafyrirtækisins og eiginkona hans jólagjafir handa vinum og vandamönnum í netverslun okkur og í fyrra keypti Yoko Uno hundrað Þórsmörk Parka dúnúlpur í jólagjafir. Þá fá allir starfsmenn á vinnustofu Ólafs Elíassonar gjafir frá 66°Norður.
Sigurjón segir að fyrirtækið hafi lítið auglýst, en að hróður varanna hafi borist manna á milli, og hinir ýmsu einstaklingar hafi verið duglegir að kynna vörurnar. ,,Eli Roth og Quentin Tarantino hafa til dæmis verið afar duglegir, án nokkurrar hvatningar að kynna og gefa fötin." segir Sigurjón.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
