Fréttir og viðburðir
28.12.2007
Tarantino og Eli Roth dúða sig að hætti Íslendinga
Félagarnir ásamt Eyþóri Guðjónssyni í búðinni í gær. Félagarnir Quentin Tarantino og Eli Roth til Íslands í gær til þess að vera yfir áramótin. Kannski að þeir hafi lesið veðurspána fyrir gamlárskvöld, en eitt af því fyrsta sem þeir félagar gerðu var að fara í verslun 66°Norður í Bankastræti og birgja sig upp af hlýjum og flottum fatnaði.
Tarantino og Roth þekkja vörumerkið vel að eigin raun og hafa verið iðnir við kolann að kynna vörurnar á erlendri grund. Roth klæddist ekki öðru við tökur á Hostel 2 í Prag enda mjög kalt á tökustað og Tarantino hefur mætt í fjölda viðtala klæddur 66°Norður, núna síðast var hann á forsíðu breska tímaritsins The Telegraph með húfu frá fyrirtækinu.
Meðal þess sem þeir Tarantino og Roth keyptu í gær voru Stormur flísjakkar, dúnsokkar og svo keypti Roth Víkur hestafatnaðinn enda er hann mikill áhugamaður um íslenska hestinn.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
