Fréttir og viðburðir
24.1.2008
66°Norður kynnir nýju vetrarlínuna sína erlendis
Nú er mikið að gerast hjá 66°Norður en fyrirtækið er á fullu að kynna nýju vetrarlínuna sína erlendis. Þessa og næstu vikur eru 3 stórar útivistarsýningar sem 66°Norður mun kynna nýju vörurnar sínar en þetta eru OR í Salt Lake City, ISPO í Munchen og svo SIA í Las Vegas.
Allt eru þetta stórar sýningar, þar sem fyrirtækinu gefst kostur á því að kynna sig og sínar vörur fyrir hugsanlegum kaupendum, og er þátttaka á þessum sýningum hluti af útrás 66°Norður. Nú þegar hefur 66°Norður fengið frábærar viðtökur bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu og hefur fyrirtækinu borist fjöldinn allur af fyrirspurnum um merkið og stöðu þess erlendis. Nýja vetrarlínan hittir í mark hjá mjög breiðum hópi fólks þar sem hún samanstendur bæði af tæknilegum útivistarfatnaði eins og Vatnajökul línunni og götufatnaði úr hágæða efnum sem gengur undir nafninu “Icelandic Living”.
Af viðbrögðunum að dæma er 66°Norður langt frá því að vera hætt í útrás og það verður gaman að sjá hvernig fyrirtækinu mun vegna í framtíðinni.
Nánari upplýsingar veitir
Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri
Tölvupóstu: helga@66north.is
Sími: 825 6627
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.




